Innlent

Mótmælendur veittust að Geir

Mótmælendur veittust að bíl Geirs H. Haarde forsætisráðherra við stjórnarráðið í gær. Þeir hentu eggjum í bifreið hans og kröfðust þess að boðað yrði til kosninga án tafar.

Geir þurfti aðstoð lögreglu við að komast af bílastæði sínu. Aðspurður viðurkenndi Geir að sér hafi verið brugðið við ágang fólksins.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×