Innlent

Íslandsmeistaramótið í póker hefst í hádeginu

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. Mynd/Anton Brink
Íslandsmeistaramótið í póker hefst klukkan 12 á eftir en það fer fram á Hilton Hótel Nordica. 180 þátttakendur eru skráðir til leiks. Áhorfendur geta mætt og fylgst með.

Flestir þátttakenda unnu sér inn miða á mótum sem haldin hafa verið að undanförnu. Ýmist á netinu eða á mótum sem hafa verið haldin víðsvegar um landið. Um fjörutíu spilarar keyptu sig inn á mótið og borguðu fyrir það 40.000 krónur.

Við þetta má bæta að pókervefurinn 52.is verður með stöðugar uppfærslur af mótinu þar sem farið verður yfir stöðu mála, efstu menn, áhugaverðar hendur og athyglisverða spilara.


Tengdar fréttir

Fyrsta alþjóðlega pókermótið á Íslandi fer fram í kvöld

Fyrsta alþjóðlega pókermótið á Íslandi verður haldið á veitingastaðnum Sólon í kvöld. Átta norskir pókerspilarar og einn íslenskur munu keppa um laust sæti á pókermóti í Litháen þar sem tugmilljónir króna eru í boði fyrir sigurvegarann.

Fullt á Íslandsmeistaramót í póker

„Frá upphafi var ég 100 prósent viss um að mótið myndi fyllast," segir Jóhann Ólafur Schröder, einn af skipuleggjendum Íslandsmeistaramótsins í póker, sem fer fram á Hilton Hótel Nordica um næstu helgi.

Viskíflaska til höfuðs Agli, Fúsa og Audda

„Ég er vanur því að menn vilji taka fyrirliðann út. Þannig að ég kippi mér ekkert upp við að það sé „bounty“ á mér. Það er bara gaman fyrir þessa fiska að fá að mæta fyrirliðanum,“ segir Egill „Þykki“ Einarsson, líkamsræktarfrömuður og pókerspilari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×