Fékk blóðeitrun eftir leik á lóð borgarinnar 14. júlí 2009 05:30 á svæðinu Þegar Fréttablaðið bar að garði voru börn að leik á svæðinu. Timbur og járn skapa mikla hættu fyrir börnin, auk þess sem naglar og gler leynast í grasinu. fréttablaðið/valli
Mikil slysahætta hefur myndast á stórri lóð í Norðlingaholti. Miklu byggingarusli hefur verið komið fyrir á lóðinni sem er í eigu Reykjavíkurborgar. Þá stendur hálfkláruð blokk með stillönsum á svæðinu. Nokkur börn í hverfinu hafa slasast á svæðinu, meðal annars lá ungur drengur á spítala í nokkra daga með blóðeitrun eftir að hafa stigið þar á nagla. „Þetta eru alls konar timburafgangar, járn og rör og fleira,“ segir Katrín Garðarsdóttir, sem er íbúi í Kambavaði, sem er ein þeirra gatna sem umlykja svæðið. Hinar göturnar eru Hestavað og Helluvað. Katrín segir að ruslið sé í eigu byggingafyrirtækis sem var að byggja tvær blokkir í hverfinu, en fór svo á hausinn. Önnur þeirra er nánast fullkláruð og í henni er búið. Hin er hálfkláruð og ekki girt af. „Þar eru stillansar í kring og svæðið er mjög hættulegt börnum.“ Blokkin var girt af á meðan unnið var í henni en síðan þá hefur girðingin verið fjarlægð. Börn geta því klifrað upp á fjórðu hæð. Katrín segir að fyrir utan slysin hafi mörg börn rifið og eyðilagt föt sín á nöglum og járnum. Það sé þó lítið mál miðað við hættuna sem þarna er. „Börn eru bara þannig að þau fara í svona hættur, og þó að maður sé auðvitað á vaktinni þá getur maður ekki passað öll börnin í hverfinu.“ Um fjörutíu börn búa í húsunum í kringum svæðið. Íbúar segjast óttast að alvarlegri slys verði á svæðinu fljótlega ef ekkert verði að gert. Margir íbúar á svæðinu segjast hafa hringt ítrekað í Reykjavíkurborg til þess að ýta á úrbætur. Hverfisfundur hafi einnig verið haldinn og borgin viti því vel af vandanum. Íbúarnir hafa jafnvel boðist til að hreinsa svæðið sjálfir, ef borgin kemur með vörubíl eða gám á svæðið og fjarlægir það síðan. Fálega hefur verið tekið í það, að sögn þeirra, og lítið hefur verið um svör. „Við höfum fengið þau svör að það þurfi að ná í viðkomandi eiganda,“ segir Katrín, en erfitt hefur reynst að ná í eigendurna. „Við viljum ekki að borgin komi og girði af svæðið, við viljum ruslið í burtu. Þetta er skemmtilegt og fallegt svæði, en ekki við þessar aðstæður.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Sjá meira