Íslenskt stóðlíf í Belgíu 8. júní 2009 06:00 Tökulið belgíska ríkissjónvarpsins vildi kynnast öllum hliðum íslenska hestsins um helgina. Fréttablaðið/Arnþór
Belgíska ríkissjónvarpið var hér á landi um helgina við að mynda heimildarþátt um íslenska hestinn. Íshestar, Icelandair, Ferðamálastofa og utanríkisráðuneytið koma auk Belga að þættinum. Þátturinn fjallar um dýralíf í hinum ýmsu löndum og er sýndur á besta tíma. Tökuliðið var hér á landi yfir helgina, en þáttastjórnandinn var leiddur í hestaferð af Svandísi Dóru Einarsdóttur, leikaranema og hestaleiðsögumanni hjá Íshestum. Farið var að Kjóastöðum og á Þóroddsstaði og fékk tökuliðið að kynnast íslenska hestinum í fyrsta sinn. Fréttablaðið heyrði í Einari Bollasyni, framkvæmdastjóri Íshesta, fyrir helgi. Hann bjóst við að margt myndi koma belgíska tökuliðinu á óvart, af reynslu sinni af erlendu sjónvarpsfólki. „Þau gera sér enga grein fyrir hversu mikill snillingur íslenski hesturinn er. Fólk bara trúir þessu ekki þegar það fer að kynnast kostum íslenska hestsins. Það verður alveg bergnumið. Þau lögðu líka mikla áherslu á það að vera í tengslum við íslensku sauðkindina. Nú eru öll nýfæddu lömbin að hlaupa um grundir og haga, þannig að það ber vel í veiði.“ Einnig var farið á hrossaræktarbú. „Það er nú ekkert af verri endanum, það eru sjálfir Þóroddsstaðir í Grímsnesi, þar sem einn frægasti stóðhestur landsins, Þóroddur, er til húsa.“ Hann segir belgíska sjónvarpið mjög spennt fyrir undaneldi íslenska hestsins. „Við erum að vona að þau fái einhverja sýningu á Þóroddsstöðum. Þau báðu alveg sérstaklega um að þau gætu myndað einhvern góðan stóðhest „in action“. Við vonum bara að það standi vel á hjá Þóroddi.“ Einar treystir því að þátturinn verði góð landkynning. „Þetta er mjög mikilvægt, ekki bara fyrir íslenska hestinn heldur landið. Belgía er land sem ekki hefur verið ofarlega á listum yfir erlenda ferðamenn.“ kbs@frettabladid.is
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira