Innlent

Spyr hvort ráðherra hafi blekkt þingheim

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist munu krefja Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra svara í þinginu í dag hví hann hafi sagt á miðvikudaginn var að engar formlegar viðræður væru þá hafnar í Icesave-deilunni.

„Ég spurði að því í óundirbúnum fyrir­spurnartíma hvort eitthvað væri að gerast í málinu en þá var farið að kvisast út í þinginu og meðal fjölmiðlamanna að svo væri,“ segir Sigmundur. „Hann svaraði því til að svo væri ekki, að viðræður væri ekki einu sinni hafnar. Svo kemur bara í ljós að það er alls ekki rétt.“ Hann segist undrast leyndina yfir málinu og aðförunum við að viðhalda henni.

Samkomulagið við Breta og Hollendinga verður kynnt þingmönnum í vikunni. - jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×