Segir ráðherra hóta Seðlabanka óbeint 8. júní 2009 05:30 Ögmundur Jónasson
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar, gagnrýnir Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra harkalega vegna ummæla sinna í Fréttablaðinu á laugardag. Þar ber hann upp þá hugmynd að breyta lögum um Seðlabankann þannig að hann verði ekki sjálfstæð stofnun. „Ég tel það mjög óheppilegt að ráðherra sé óbeint að hóta Seðlabankanum með þessum hætti," segir Sigríður Ingibjörg. Hún segir mikilvægt að peningamálanefnd Seðlabankans verði áfram óháð ríkisstjórninni og veiti henni aðhald með ríkisfjármálin. Hún vísar síðan í ákvörðun Seðlabankans um að lækka stýrivexti einungis um eitt prósent en Ögmundur gagnrýndi einmitt þá ákvörðun. „Augljóslega vill bankinn fá beinar tillögur í hendurnar frá ríkisvaldinu í stað þess að fá aðeins munnleg vilyrði. Með því er verið að sýna ríkinu aðhald og þá væri ráðherrum hollara að bregðast við með því að búa svo um hnútana í sínu ráðuneyti að hægt verði að lækka vexti í stað þess að vera með svona óbeinar hótanir." Hún segir þó peningamálanefnd alls ekki hafna yfir gangrýni. „Við getum vissulega haft okkar skoðanir á þeim ákvörðunum sem teknar eru í Seðlabankanum en það er einnig mikilvægt að þær ákvarðanir séu teknar á faglegum forsendum en ekki pólitískum. Eins og málum er nú háttað held ég að við getum treyst því að svo sé, í það minnsta tel ég hann hafa staðið faglega að málum." Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir þessa hugmynd afar óskynsamlega. Ráðherra verði að þola aðhaldið og gagnrýnina. „En það kemur ekkert á óvart að fá hugmynd úr þessari átt sem miðar að því að koma sem mestu ákvörðunarvaldi undir stjórnmálamenn," segir hann. „Það sem ráðherra, sem er óánægður með vaxtaákvörðun Seðlabankans, þarf að gera er að líta sér nær. Stjórnarinnar bíður skýrt afmarkað verkefni og það er að skapa traust og tiltrú á að hún hafi náð utan um vandann og sé með trúverðugar tillögur um hvernig skuli unnið á honum. Þessu hefur hún ekki risið undir svo það ætti ekki að koma þessum mönnum svo á óvart að vaxtalækkunarferlið sé ekki hraðara en þetta." jse@frettabladid.is
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Sjá meira