Versti samningur sem íslensk ríkisstjórn hefur hugleitt að skrifa undir 8. júní 2009 16:57
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins var harðorður í umræðum um Icesavesamningana á Alþingi fyrr í dag. Hann sagði að annaðhvort hefðum við ríkisstjórn sem áttaði sig ekki á grundvallaratriðum í efnahagsmálum eða þá ríkisstjórn sem væri vísvitandi að blekkja þingið. Hann sagði marga erlenda lögfræðinga sem og marga af færustu lögfræðingum Íslands hafa haldið því fram að lagaleg staða okkar í þessu máli væri sterk. „Þessu er litið framhjá. Í Þorskastríðunum vorum við að sækja meira en lagalegur réttur okkar sagði til um. Nú hafa menn ekki dug þegar þjóðin hefur lagalegan rétt. Þetta er forkastanlegur aumingjaskapur hæstvirtur fjármálaráðherra," sagði Sigmundur Davíð. Hann spurði hvort menn myndu virkilega halda því fram að við værum komin í skjöl næstu sjö árin. Ef svo væri myndi það sína meiri vanþekkingu á efnahagsmálum en hann hefur nefnt varðandi gengi krónunnar. „Halda menn að þessar skuldbindingar hafi ekki áhrif á lánshæfismat ríkissins. Ef svo væri þá gæti hvaða skuldsetta fyrirtæki sem er gefið út skuldabréf og tilkynnt að það væri skuldlaust. Þetta er fráleitt." Hann sagði samkomulagið ekki gera neitt annað en skaða okkur næstu sjö árin og þá sæi hann fram á aðra krísu. „Þetta er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum sem gengur út á það að fresta og lengja í málum." Hann sagði kaldhæðnina í þessu vera þá að þetta sé það sama og Landsbankinn gerði þegar bankinn var kominn í vandræði og átti erfitt með að fjármagna sig. „Þá gripu menn til þess örþrifaráðs að taka gríðarlega mikið lán í von um að ástandið myndi lagast, að eignasafn bankans yrði verðmætara og bankinn gæti staðið undir þessum lántökum. En eignasafnið varð ekki verðmætara og ástandið fór versnandi." Hann sagði ríkisstjórnin nú ætla að skuldbinda íslenskan almenning í þeirri von að eignasafnið myndi lagast, hækka í verði og þannig væri hægt að borga. „Þetta er versti samningur sem íslensk ríkisstjórn hefur hugleitt að skrifa undir, þennan samning má ekki staðfesta."
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira