Innlent

Alltaf betra að semja en deila

Þórólfur Matthíasson
Þórólfur Matthíasson

Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor segist hafa skilning á sjónarmiðum þeirra sem gagnrýna stjórnvöld fyrir að hafa ekki náð hagstæðari lendingu í Icesave-deilunni. „En það er líka gott að líta á þetta hinum megin frá,“ segir hann. „Ég er ansi hræddur um að menn tækju fram búsáhöldin ef Bretar hefðu verið með banka hér, farið á hausinn og neitað að borga innistæðurnar.“

Hann segir afar mikilvægt að með þessu samkomulagi sé búið að tryggja að Íslendingar verði ekki lögsóttir fyrir að gera upp á milli kröfuhafa. Hann segir enn fremur að þar sem ekki verði byrjað að borga af þessu fyrr en eftir sjö ár opnist möguleikar á að fá Breta til að endurskoða samkomulagið í millitíðinni.

„Þá verður búið að skipta um stjórn alla vega tvisvar á Bretlandi og það verður búið að skrifa margar lærðar ritgerðir um þetta og ef sýnt er fram á að það sé ómaklega vegið að okkur með þessu þá er möguleiki að það verði brugðist við því. Þarna [með þessu samkomulagi] er allavega búið að setja hámark á það sem við þurfum að standa skil á og það hámark er lægra en það sem miðað var við þegar gert var upp við íslenska innistæðueigendur.“ Hann segir enn fremur yfirleitt betra að semja í svona deilum. „Við Íslendingar erum heldur ekki í neinni stöðu til að standa í illdeilum.,“ segir Þórólfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×