Indefence hópurinn: Bretar beittu okkur þrýstingi í Icesavesamningum Breki Logason skrifar 8. júní 2009 15:11 Indefence hópurinn.
Átta meðlimir hins svokallað Indefence hóps áttu fund með Svavari Gestssyni sem fór fyrir Icesave samninganefndinni í morgun. Ólafur Elíasson einn af meðlimum hópsins segir að eftir fundinn hafi þeir endanlega sannfærst um að samningarnir séu afar slæmir og það sé algjörlega óhugsandi að þingmenn geti með samvisku sinni skrifað undir fyrirliggjandi samkomulag. Hann segist hafa fengið það staðfest hjá einum af æðstu embættismönnum þjóðarinnar að Bretar hafi beitt okkur alþjóðlegum þrýstingi í samningaviðræðunum. „Það er algjörlega ólíðandi að ekki sé búin til almennileg samningsstaða fyrir þessa samninga enda sést það á niðurstöðunni sem er mjög fyrirsjáanleg," segir Ólafur og bendir á að ekkert hafi verið tekið tillit til hryðjuverkalaganna sem Bretar settu á okkur. Hann segir meðlimi Indefence vera gríðarlega ósátta og séu nú á leið niður við Alþingi að mótmæla. „Við leggjum áherslu á það að þingmenn séu ekki hræddir við að neita þessari ábyrgð og það sé í raun mjög eðlilegt. Það eina sem það hefur í för með sér er að við sendum þá aftur að samningaborðinu til þess að ná í betri samning," segir Ólafur en hópurinn vann að bæklingi í alla nótt sem þeir ætla að afhenda þingmönnum og vilja helst hitta þá til þess að ræða þessi mál. Ólafur segist hafa fengið staðfest frá einum af æðstu embættismönnum þjóðarinnar að ástæða þessarar niðurstöðu sé meðal annars sú að Bretar séu að beita okkur alþjóðlegum þrýstingi sem hafi meðal annars verið gert í gegnum Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Hann segir einnig að undanfarna daga hafi hann fengið fjöldann allan af símtölum frá fólki í æðstu stöðum kerfisins sem sé afar áhyggjufullt yfir hugsanlegum afleiðingum þessa samnings. „Menn hafa til dæmis velt því fyrir sér hvað gerist ef neyðarlögin standast ekki. Við gerum verulegar athugasemdir við það að engir fyrirvarar eru í samningnum um að neyðarlögin haldi. Það eru Hollendingar staddir hér á landi sem áttu yfir 10 milljónir inni á reikningum sínum sem ætla í mál við ríkið útaf neyðarlögunum. Ef þau eru dæmd ógild gætum við lent í auka greiðslu upp á allt að 400 milljarða króna svo eitthvað sé nefnt." „Stóra spurningin er síðan sú að nú er allt að fjara undan Gordon Brown. Er þetta þá rétti tíminn til þess að menn séu að gera eitthvað samkomulag um miðjar nætur við þessa menn, maður botnar ekkert í því," segir Ólafur að lokum.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Sjá meira