Ekkert banaslys á sjó á einu ári 8. júní 2009 06:00 Hátíðarhöldin tókust vel Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadagsráðs, segir það hafa gefist vel að flytja hátíðarhöldin í Reykjvaík frá Miðbakka og út á Grandagarð.
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í gær og raunar var helgin víða undirlögð enda hefur þróunin hin síðari ár verið sú að skipulögð sjómannadagskrá teygir sig yfir á nokkra daga. Í Reykjavík hófust hátíðarhöldin á laugardag og héldu síðan áfram í gær með skemmtidagskrá á Grandagarði. Að sögn Guðmundar Hallvarðssonar, formanns sjómannadagsráðs, tókust hátíðarhöldin vel. „Við fengum afar góðar undirtektir með þennan tilflutning á sjómannadeginum frá Miðbakka og út á Grandagarð enda meiri nálægð við Sjóminjasafnið og varðskipið Óðin svo dæmi séu tekin. Þangað streymdi geysilegur fjöldi fólks báða dagana auk þess sem það leit á furðufiska Hafrannsóknastofnunar, bragðaði sjávarfang, fór í siglingar og fleira.“ Guðmundur segir að það sem standi upp úr sé þó að þetta er í fyrsta skipti, frá því að sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1938, sem enginn hefur farist á sjó á milli sjómannadaga, en mannslífin hafa oft skipt tugum. „Því var engin stjarna í minningarfánanum sem var gengið með inn í sjómannadagsmessuna í Dómkirkjunni að þessu sinni,“ segir Guðmundur, en herra Karl Sigurbjörnsson biskup predikaði auk þess að minnast drukknaðra sjómanna. Um miðjan dag var svo að venju hátíðardagskrá en hún fór að þessu sinni fram í Sjóminjasafninu á Grandagarði. Þar flutti Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra ávarp ásamt fulltrúum sjómanna og útvegsmanna. Aðspurður segist Guðmundur ekki vita til þess að nokkur íslensk skip hafi verið á veiðum í gær. „Ég held að allir hafi virt lög um að vera í landi á sjómannadaginn.“ - ve
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira