Innlent

Flugeldadólgar héldu vöku fyrir þingkonu og syni

Þreytuleg þingkona.
Þreytuleg þingkona.

Lögreglan fékk tilkynningu um klukkan fimm í morgun um að óprúttnir aðilar hefðu kveikt í skottertu. Fjölmargir vöknuðu við herlegheitin og meðal annars þingkona Borgarahreyfingarinnar, Birgitta Jónsdóttir.

„Ég vaknaði upp við tertuskothríðina í nótt: í henni var kveikt á bílaplaninu við Þjóðarbókhlöðuna sem er beint á móti blokkinni sem ég bý við - ég hrökk upp og var of svifasein að ná ljósmynd af mönnunum tveimur sem þarna voru að verki - en þeir voru svartklæddir, á milli tvítugs og þrítugs og greinilega vel undir þetta búnir ...," segir Birgitta sem var ekki skemmt þegar flugeldarnir sprungu á himninum með tilheyrandi látum.

Hún var ekki sú eina sem vaknaði á heimilinu því sonur hennar vaknaði einnig.

„Yngri sonur minn vaknaði og gat ekki sofnað aftur - en þetta var klukkan hálf fimm í nótt," segir Birgitta á blogginu sínu og segist ekki skilja hvers vegna fólk geri svona lagað.

„ Það glumdi enn hærra því heitt er í veðri og allir gluggar opnir," segir Birgitta og vandar þeim ekki kveðjurnar að lokum: „Ég segi nú bara skammist ykkar fyrir að vekja ugg í brjósti barna og dýra."

Lögreglan hafði ekki hendur í hári hávaðaseggjanna þegar hún kom á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×