Innlent

AGS benti á brotalamir í seðlabankafrumvarpi

Stígur Helgason skrifar
Sigmundur Davíð.
Sigmundur Davíð.
Efnahagsmál Forsætisráðuneytinu hafa borist tæknilegar ábendingar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um frumvarp um breytingar á yfirstjórn Seðlabankans, sem liggur nú fyrir viðskiptanefnd Alþingis. Ekki liggur fyrir hvers kyns athugasemdirnar eru.

Í yfirlýsingu frá AGS kemur fram að athugasemdirnar hafi verið gerðar í kjölfar beiðni frá ráðuneytinu. Slíkar athugasemdir séu alsiða í samstarfi sjóðsins við ríkisstjórnir. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurðist fyrir um athugasemdirnar á þingi í gær. Hann á von á að fá frekari skýringar á athugasemdunum á fundi viðskiptanefndar í dag.

Davíð Oddsson ákvað í fyrradag að segja ekki af sér sem seðlabankastjóri, og nær öruggt er að hann muni því sitja áfram ásamt Eiríki Guðnasyni þar til lögin um breytingarnar taka gildi.

Frumvarpið verður tekið til umræðu í viðskiptanefnd í dag. Til stóð að efnahags- og skattanefnd fengi frumvarpið til umfjöllunar en að kröfu Framsóknarflokksins fór það í viðskiptanefndina.

Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar, segir að reynt verði að vinna málið eins hratt og vel og mögulegt er, en treystir sér ekki til að segja til um hvenær það gæti orðið að lögum.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins standa vonir stjórnarliða til þess að frumvarpið gæti verið afgreitt sem lög frá Alþingi jafnvel strax um miðja næstu viku.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sem ver ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna falli, segir stöðuna sem upp er komin í samskiptum ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans mjög óþægilega, ekki síst vegna óvissunnar sem það skapar um framtíð bankans. Hann vill hins vegar ekki tjá sig frekar um málið fyrr en hann hefur fundað með fulltrúum AGS í dag.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×