Býður milljón þeim sem tekur að sér afborganir 10. febrúar 2009 19:01
Fjölskyldufaðir á Akranesi hefur auglýst einbýlishús sitt til sölu og býður eina milljón í peningum þeim sem er reiðubúinn að yfirtaka skuldirnar á húsinu. Hann segir gjaldþrot blasa við ef ekki selst og er illur út í þá sem stýrðu þjóðarbúinu í þrot. Karl Eggertsson, fjölskyldufaðir á Akranesi, greip í gær til þess ráðs að auglýsa einbýlishús til sölu í smáauglýsingum Fréttablaðsins. Húsið er 227 fermetrar og fæst gegn yfirtöku skulda og milljón á borðið - sem seljandinn vill gefa þeim sem losar hann við skuldirnar. Karl keypti húsið fyrir tæpum fimm árum og bjó þar ásamt konu og tveimur sonum. Þau fluttu vegna atvinnumissis vestur þar sem þau hafa rekið Hótel Látrabjarg, svo aftur suður á Skaga fyrir tveimur árum og keyptu í hagsýni sinni helmingi minna hús. Nema þá gekk ekkert að selja. Nú greiða þau af tveimur húsum á Akranesi, hóteli fyrir vestan og húsi á Patró. Karl er varla einn í þessari súpu. Í árslok 2006 skulduðu heimilin röska 1300 milljarða en tæpa 1900 milljarða nokkrum dögum fyrir bankahrunið. Engar opinberar tölur eru fyrir skuldir heimilanna í dag en miðað við gengi krónu og verðbólgu hafa skuldirnar líklega vaxið um 100 milljarða frá bankahruni. Það þýðir að skuldabyrði heimilanna hefur þyngst um nærri 670 milljarða króna á tveimur árum. En Karl er ekki af baki dottinn þótt gjaldþrot geti verið handan við hornið. Hann kveðst heilsuhraustur og vinnufús, hann hafi miklu meiri áhyggjur af því hvað stjórnvöld séu að gera. Fari allt á versta veg í heimilisbókhaldinu myndi hann una sér í afdal.
Mest lesið Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sjá meira