Innlent

Tólf líkamsárásir

MYND/Eyþór
Tólf líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um nýliðna helgi. Meirihluti þeirra, eða sjö, átti sér stað í miðborginni aðfaranótt laugardags. Flestar líkamsárásanna voru minniháttar en tveir eða þrír karlar fóru þó nefbrotnir heim eftir skemmtanir næturinnar.

Þá kinnbeinsbrotnaði einn maður á öldurhúsi en aðrir sem lentu í átökum um síðustu helgi sluppu mun betur með skrekkinn. Í flestum tilvikum voru bæði gerandi og þolandi undir áhrifum áfengis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×