Hótanir um að hætta að selja íslenskan fisk 1. mars 2009 11:09 Steingrímur J. Sigfússon MYND/STEFÁN
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að erlendir aðilar hafi hótað því að taka íslenskan fisk af markaði vegna hvalveiða þjóðarinnar. Hann segir erlenda sendiherra hafa komið á sinn fund með gögn og upplýsingar sem styðji þetta. Hann segir að nú síðast hafi bandaríkjamenn mótmælt hvalveiðum íslendinga. Steingrímur var gestur á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. „Við höfum auðvitað þurft að útskýra okkar afstöðu og ég hef sagt að við munum endurmeta þetta og það hefur róað ástandið svolítið," sagði Steingrímur sem hefur þurft að vinna í þessum málum á hverjum degi síðan hann tók við ráðherraembætti. Þessi andstaða við hvalveiðar kemur honum ekki á óvart og hann spyr hvað menn hafi haldið að myndi gerast þegar íslendingar hófu stórfelldar atvinnuveiðar á hvali til útflutnings. Hann segir málið hafa horft öðruvísi við ef við myndum einungis veiða hval fyrir innanlandmarkað Hann sagðist einnig hafa gert öllum þeim sem stunda hvalveiðar ljóst að ákvörðunin yrðir endurskoðuð á árinu. „Við verðum að meta þetta þjóðhaglsega strax í lok þessa árs þessa vinnu vantaði hjá forvera mínum sem tók illa ígrundaða ákvörðun á síðustu metrunum. það var ákaflega óþægilegur arfur sem þurfti að setja í gang heilmikla vinnu á stuttum tíma." Steingrímur sagði einnig að það hefðu verið vonbrigði hversu mikill tími fór í seðlabankafrumvarpið en það hafi verið mikilvæg ákvörðun til þess að öðlast traust erlendra aðila. Hann sagði stjórnarandstöðuna hafa verið sér til skammar þegar verið var að pexa um höfundarrétt á lagafrumvörpum og hvort hún fengi ekki fulltrúa sem forseta alþingis. Hann vonast til að komandi frumvörp fái skjóta afgreiðslu í þinginu en hann sagði mörg lagafrumvörp vera á leiðinni. Fólkið í landinu færi að finna fyrir breytingum strax í byrjun mars.
Mest lesið Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Fleiri fréttir Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Sjá meira