Þyrlan lenti með þær slösuðu í Reykjavík 1. mars 2009 14:53
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, lenti við Borgarspítalann um hálfþrjúleytið með tvær erlendar konur, sem slösuðust þegar bíll valt út af hringveginum á Breiðamerkursandi. Slysið varð um hálftíuleytið í morgun, um fimm kílómetra austan við Jökulsárlón. Talið er að ökumanni hafi fatast aksturinn í hálku en bíllinn fór eina og hálfa veltu. Fimm útlendingar voru í bílnum og komust þrír þeirra af eigin rammleik úr flakinu en tveir voru fastir. Önnur konan var fyrst flutt með sjúkrabíl til Hafnar í Hornafirði en annar sjúkrabíll lagði af stað með hina konuna áleiðis til Reykjavíkur til móts við þyrluna, sem tók við konunni á Kirkjubæjarklaustri um hálftólfleytið. Þyrlan var rétt farin í loftið til Reykjavíkur þegar henni var snúið við aftur að Klaustri til að taka um borð lækni, sem fylgt hafði konunni í sjúkrabílnum, og flytja hann til Hornafjarðar, til að sinna þar veiku barni en enginn læknir var þá á Höfn vegna umferðarslyssins. Þegar þyrlan lenti á Höfn var hin konan úr bílslysinu við Jökulsárlón þangað komin og var brugðið á það ráð að þyrlan tæki hana einnig um borð og flytti hana með samferðakonu sinni til Reykjavíkur. Báðar eru konurnar með höfuðáverka en þær voru í bílbelti og eru ekki taldar alvarlega slasaðar.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira