Elísabet blekkti með villandi auglýsingum 10. desember 2009 03:30
Neytendastofa bannar áframhaldandi birtingu auglýsinga um að svokallaðar Elísabetartryggingar séu allt að 30 prósentum lægri fyrir heimili en hjá öðrum tryggingafélögum. „Í auglýsingunum er ekki greint frá því að um mismunandi tryggingar er að ræða og því eru þær villandi," segir í ákvörðun Neytendastofu sem skoðaði málið eftir ábendingar frá neytendum um að í tryggingum Elísabetar væru færri vátryggingaþættir en hjá öðrum tryggingafélögum. Það er Tryggingamiðstöðin sem rekur tryggingafélagið Elísabet. Neytendastofa óskaði eftir að færðar yrðu sönnur á fullyrðinguna um að heimilin spöruðu 30 prósent með því að kaupa tryggingar Elísabetar. Þá var spurt hvort tekið hafi verið tillit til sjálfsábyrgðar og þeirra vátryggingaþátta sem keppinautar Elísabetar bjóða eða hvort einungis hafi verið litið til verðs. Elísabet svaraði með því að vísa í verðdæmi á vefsíðu sinni. Í samanburði þar við Vátryggingafélag Íslands kæmi fram hver vátryggingafjárhæðin væri og að hvaða leyti trygging Elísabetar hefði takmarkaðra bótasvið en tryggingar VÍS. „Neytendastofa hefur vegna máls þessa borið saman skilmála á fasteignatryggingum Elísabetar og skilmála samanburðarfélagsins. Við þá skoðun hefur komið í ljós að í tryggingu samanburðarfélagsins eru ábyrgðarliðir sem ekki eru í tryggingum Elísabetar," segir Neytendastofa sem telur Tryggingamiðstöðina hafa brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. „Í auglýsingum Elísabetar er með almennum hætti fullyrt að neytendur geti lækkað kostnað við heimilistryggingar um allt að 30 prósent. Eins og að framan hefur verið rakið eru í auglýsingunum bornar saman tryggingar Elísabetar við tryggingar keppinauta þó þær innihaldi til dæmis ekki sömu ábyrgðarliði," segir Neytendastofa og minnir á að viðskiptahættir séu óréttmætir ef þeir raski verulega eða séu líklegir til að raska verulega fjárhagslegri hegðun neytenda. Viðskiptahættir teljist villandi ef þeir séu líklegir til að blekkja neytendur. „Er það mat Neytendastofu að auglýsingar Elísabetar með fullyrðingu um allt að 30% lækkun á verði heimilistrygginga séu til þess fallnar að hafa áhrif á fjárhagslega hegðun neytenda. Þá er neytendum að mati stofnunarinnar gefnar villandi upplýsingar um verð þjónustunnar þar sem ekki er greint frá því að færri ábyrgðarliðir eru í tryggingum Elísabetar en tryggingum keppinauta." gar@frettabladid.is
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira