Hæstiréttur þyngir dóm yfir Jafeti - sektaður um milljón 10. desember 2009 16:43
Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir Jafeti Ólafssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra VBS fjárfestingabanka en Jafet var dæmdur í héraðsdómi til að greiða 250 þúsund krónur í sekt fyrir brot gegn lögum um fjármálafyrirtæki. Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar sem dæmdi Jafet til þess að greiða eina milljón króna í sekt en sæta ella fangelsi í 40 daga. Að auki skal Jafet greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, tæpar 390 þúsund krónur. Jafeti var gefið að sök að rjúfa trúnað við Geir Zoega með því að láta lögmanninn Sigurð G. Guðjónsson hafa upptöku að samtali Jafets og Geirs. Í samtali við fréttastofu þegar dómur héraðsdóms féll sagðist Jafet vera alsaklaus af ákærunni, fáránlegt væri að fella dóminn á þennan hátt. Forsaga málsins er sú að til stóð að Jafet annaðist milligöngu um kaup Fjárfestingafélagsins Grettis, þar sem Sigurður var framkvæmdastjóri, á hlut Geirs í Tryggingamiðstöðinni. Geir hætti við söluna rétt áður en til stóð að gera kaupsamning og sagði hann Jafet í símtali frá því að hann hefði gert samning við aðra um kaup á hlutnum. í símtali og var Sigurður ósáttur við þau málalok og taldi að yfirtökuskylda hafi myndast í ljósi þess að nýju kaupendurnir áttu þegar stóran hlut í TM. Sigurður sendi þá Fjármálaeftirlitinu erindi og notaði hann hljóðupptökuna frá Jafeti til þess að færa rök fyrir máli sínu. Geir kvartaði þá til FME og sagði að Jafet hefði brotið á sér trúnað. Nokkru síðar, eða í haust, tók FME þá ákvörðun að kæra málið til lögreglu.
Mest lesið „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Erlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum Innlent „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Erlent Fleiri fréttir „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Sjá meira