Veikir ekki stjórnarsamstarfið 11. desember 2009 18:56
Fjármálaráðherra segir það ekki veikja stjórnarsamstarfið að tveir þingmenn Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn Icesave frumvarpinu. Afstaða þeirra hafi þó valdið honum vonbrigðum. Hann reiknar með að málið muni að lokum njóta stuðnings meirihluta þingmanna. Icesave frumvarpið var samþykkt með 32 atkvæðum gegn 29 á þriðjudag og greiddu þau Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson þingmenn Vinstri grænna atkvæði gegn frumvarpinu. Þráinn Bertelsson þingmaður utan flokka studdi frumvarpið. „Já auðvitað voru það vonbrigði. Ég hefði auðvitað viljað að við hefðum náð að standa öll saman um þetta. Það var vitað," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, aðspurður hvort það hafi verið vonbrigði að Ögmundur og Lilja hafi greitt atkvæði gegn frumvarpinu. Hinsvegar hafi verið mikilvægt að málið naut meirihlutastuðnings og komst til nefndar. Hann sé bjartsýnn á farsælar lyktir málsins við lokaafgreiðslu þess. „Þannig að við komum þessu leiðindamáli frá. Nóg er nú samt. Það er mikilvægt hvað sem hver segir þá er það þannig að þetta mál mun ekki gufa upp eða yfirgefa okkur," segir Steingrímur. Steingrímur telur að afstaða þingmanna Vinstri grænna til málsins muni ekki spilla stjórnarsamstarfinu. „Nei það held ég ekki. Það hefur engin áhrif á trúnað okkar í millum mín og forsætisráðherra og almennt á samstarfsflokkanna þó vissulega hafi þetta reynt á. Þetta er annað af kannski tveimur af stærstu og erfiðustu málum sem við höfum verið með í höndunum frá því að þessi stjórn var mynduð," segir Steingrímur.
Mest lesið Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Fleiri fréttir Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Atvinnuþátttaka innflytjenda meiri en Íslendinga en fjárhagsstaða verri Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Framsóknarflokkurinn mælist aftur inni Áttatíu starfsmenn í biðstöðu og HM-hópur Íslands Viðreisn býður fram undir eigin merkjum í Árborg Ekið á hjólreiðamann og hann fluttur á bráðamóttöku Val á þingflokksformanni bíður betri tíma Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Útköll vegna slagsmála Sjá meira