Meira bóluefni berst í næstu viku 11. desember 2009 10:39
Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt í byrjun næstu viku og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju við bólusetningar en efnið kláraðist á dögunum. Í tilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra segir að bólusetning hefjist á nýjan leik miðvikudaginn 16. desember og þá ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig á biðlista. Þrír liggja nú á spítala vegna veikinnar og er einn þeirra á gjörgæslu. Tekið er við nýjum pöntunum vegna bólusetningar frá og með mánudegi 14. desember, það er að segja á þeim heilsugæslustöðvum sem hafa ekki ráðstafað fyrir fram öllu bóluefninu í væntanlegri sendingu. Bóluefni verður næst dreift um landið 6. janúar 2010 og verður tekið við pöntunum í þá sendingu eftir áramótin. „Sóttvarnalæknir beinir því til heilsugæslustöðva að gefa skýrar upplýsingar á heimasíðum sínum, og við símsvörun á hverjum stað, um gang bólusetningarinnar og helstu tímasetningar. Þetta er afar mikilvægt því staða mála er mismunandi á heilsugæslustöðvunum, eins og eðlilegt er. Þannig verður unnt á sumum heilsugæslustöðvum að bólusetja fleiri núna í desember en eru þar á biðlista en á öðrum heilsugæslustöðvum dugar ný sending bóluefnis nú ekki til að bólusetja alla þá sem hafa skráð sig í bólusetningu. Í einhverjum tilvikum kemur því röðin ekki að fólki á biðlistum fyrr en í janúar," segir ennfremur. Þá segir einnig að mjög hafi dregið úr inflúensufaraldrinum hér á landi undanfarna daga og vikur. Þrír sjúklingar lágu í gær á Landspítala vegna veikinnar, þar af einn á gjörgæsludeild. „Í 49. viku ársins (29. nóvember-7. desember) var greint 101 inflúensulíkt tilfelli. Að mati sóttvarnalæknis hafa um 60.000 manns sýkst af inflúensunni frá því að faraldurinn hófst í vor. Um 180 manns hafa verið lagðir inn á sjúkrahús með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu, langflestir á Landspítala eða um 130."
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira