Innlent

Segja brottvikningu forstjóra Tals ólögmæta

Hermann Jónsson.
Hermann Jónsson.
Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, fyrrum stjórnarmenn í IP-fjarskiptum segja í greinargerð sem þeir sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta, eða Tals, að brottvikning Hermanns Jónssonar úr starfi framkvæmdastjóra í desember hafi verið ólögmæt. Alrangt segir Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis. Fyrirtækið fer með 51% hlut í IP-fjarskiptum.

„Það sem meðal annars kom til umræðu var úrskurður Fjármálaráðuneytisins um lögmæti brottvikningar Hermanns Jónassonar úr starfi framkvæmdastjóra og ráðning Ragnhildar Ágústsdóttur í sama starf. Úrskurðurinn fól í sér að umræddur gjörningur væri ólögmætur," segir í greinargerð Þórhalls og Hilmars.

„Það kom úrskurður frá fjármálaráðuneytinu sem var dreginn til baka. Hann snéri að skráningu hjá fyrirtækjaskrá og hvort prókúra nýs forstjóra væri lögmæt. Fyrst kom úrskurður um það að þetta hefði verið ólögmætt en síðan var sá úrskurður dreginn til baka," segir Þórdís.

Jafnframmt segir hún að fjármálaráðuneytið hafi gleymt grundvallaratriðum í stjórnsýslulögum og lét fyrirtækið til dæmis ekki vita að ráðuneytið væri að fjalla um málið. ,,Þessir menn eru í herferð og ljúga bara."

Þórhallur og Hilmar töldu eðlilegt upplýsa Ragnhildi sem starfandi framkvæmdastjóra um málið. Henni var boðið að taka við fyrra starfi hjá fyrirtækinu. Áætlað var að skipa staðgengil framkvæmdastjóra sem myndi taka við prókúru og stjórn félagsins tímabundið. Í framhaldinu lét Ragnhildur í ljósi þá skoðun að hún féllist ekki á þá hugmynd að fara í sitt fyrra starf hjá fyrirtækinu og hygðist sitja áfram í stóli framkvæmdastjóra.


Tengdar fréttir

Íhuga frekari aðgerðir gegn Teymi

Þær ástæður sem stjórnarmenn tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu í stjórn IP fjarskipta eða Tals, gáfu fyrir úrsögn sinni í gær gefa tilefni til grunsemda um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali og samkeppnislegu sjálfstæði þess að sögn Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins.

Fulltrúar Samkeppniseftirlitsins hættir í stjórn Tals

Stjórnarmenn sem Samkeppniseftirlitið tilnefndi í stjórn IP fjarskipta, eða Tals, þann 6. febrúar síðastliðinn hafa báðir sagt sig úr stjórninni. Þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson tóku sæti í stjórninni í stað fulltrúa Teymis að kröfu Samkeppniseftirlitsins.

Saka Teymi um viðskiptasóðaskap

Í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta eða Tals, kemur fram að þeir hafi aldrei kynnst öðrum eins viðskiptasóðaskap og þeir hafi orðið vitni að í þá fáu daga sem þeir störfuðu í stjórn Tals. Tvímenningarnir voru tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu og sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri þess við fréttastofu í dag að ástæður úrsagnar þeirra veki grun um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×