Saka Teymi um viðskiptasóðaskap 12. febrúar 2009 16:38
Í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta eða Tals, kemur fram að þeir hafi aldrei kynnst öðrum eins viðskiptasóðaskap og þeir hafi orðið vitni að í þá fáu daga sem þeir störfuðu í stjórn Tals. Tvímenningarnir voru tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu og sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri þess við fréttastofu í dag að ástæður úrsagnar þeirra veki grun um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali. Fréttastofa hefur afrit af greinargerðinni undir höndum og þar kemur meðal annars fram að reynsla þeirra Þórhalls og Hilmars af stjórnarsetunni hafi verið með „miklum ólíkindum". Vantrauststillaga á stjórn félagsins „Aldrei áður höfum við kynnst eins miklum viðskiptasóðaskap á þeim tíma sem við höfum tengst viðskiptum, kennslu í viðskiptafræðum og rekstri félaga. Hafa ber í huga að samanlögð reynsla okkar spannar vel yfir 50 ár. Af framansögðu sjáum við okkur því ekki annað fært en að segja starfi okkar sem stjórnarmenn í IP-fjarskiptum lausu eins og áður kemur fram. Okkur hefur verið bent á að með því að gera það séum við að láta Teymi komast upp með að bola stjórninni frá. Það er auðvitað undarlegt að taka þannig til orða, sérstaklega þegar haft er í huga að Teymi er meirihlutaeigandi í félaginu og ætti að vilja veg þess sem mestan. Það virðist hins vegar fátt benda til þess að svo sé," segir meðal annars.Síðasta mánudag hafði lögfræðingur Teymis samband við Þórhall þar sem hann tilkynnti honum að Teymi væri búið að gera athugasemd við úrskurð Fjármálaráðuneytisins. Myndi hann ennfremur krefjast hluthafafundar sem fyrst og að á fundinum yrði tekin fyrir vantrauststillaga á stjórn félagsins og stjórnarkjör.Kornið sem fyllti mælinn„Einnig varaði lögfræðingurinn Þórhall við því að standa að eða taka þátt í hvers konar meiriháttar breytingum, s.s. að hlutast til um brottvikningu eða ráðningu framkvæmdastjóra félagsins, fyrir þann fund. Síðar um daginn fengum við (stjórnarformaður) bréfið í hendur sem efnislega var í samræmi við samtal Þórhalls við lögfræðing Teymis. Er í bréfinu, að okkar mati, vísbending um tilburði Teymis til að hlutast til um verkefni stjórnar IP-fjarskipta ehf. og að gera hana upptekna að öðrum viðfangsefnum en að vinna félaginu gagn," segir einnig í greinargerðinni.Ekki við rök að styðjastÞar segir ennfremur að Þórhallur hafi verið „upplýstur um að eftirlitinu hefði borist bréf þar sem óskað væri eftir því að annar fulltrúi yrði skipaður í hans stað þar sem Teymi drægi óhlutdrægni hans í efa. Bréfið sem er stílað á Þórhall sem stjórnarformann, dags. 10. febrúar og undirritað af Dóru Sif Tynes hdl. er með miklum ólíkindum og er í raun það korn sem fyllir mælirinn og þess valdandi að við kjósum að hverfa frá þessu starfi nú."Þeir segja bréfið bera með sér viðhorf og vinnubrögð sem engin leið sé fyrir ærlega einstaklinga að sætta sig við. „Efnisatriðum bréfsins er vísað á bug enda eiga þau ekki við rök að styðjast. Valið er að setja mál upp með versta hætti og þannig talað til stjórnarformanns í bréfinu að enginn leið er að sætta sig við slíkt. Sætir furðu hvernig einhverjum dettur í hug að í lagi sé að haga sér með þeim hætti sem efnisinnihald bréfsins ber með sér. Stjórnarmenn héldu áfram áður frestuðum fundi en honum var frestað aftur án niðurstöðu."
Tengdar fréttir Íhuga frekari aðgerðir gegn Teymi Þær ástæður sem stjórnarmenn tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu í stjórn IP fjarskipta eða Tals, gáfu fyrir úrsögn sinni í gær gefa tilefni til grunsemda um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali og samkeppnislegu sjálfstæði þess að sögn Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins. 12. febrúar 2009 14:52 Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira
Íhuga frekari aðgerðir gegn Teymi Þær ástæður sem stjórnarmenn tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu í stjórn IP fjarskipta eða Tals, gáfu fyrir úrsögn sinni í gær gefa tilefni til grunsemda um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali og samkeppnislegu sjálfstæði þess að sögn Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins. 12. febrúar 2009 14:52