Innlent

Fékk rafknúinn hjólastól að gjöf

Tíu ára stúlka brosti allan hringinn í dag þegar hún fékk afhentan nýjan rafknúinn hjólastól að gjöf.

Það ríkti nokkur eftirvænting hjá Elísu Sól Sonjudóttur þegar hún mætti í húsnæði Kiwanisklúbbsins Sólborgar í Hafnarfirði í dag. Hún var þangað komin ásamt fjölskyldu sinni til að fá afhentan nýjan rafknúin hjólastól að gjöf frá kiwanisklúbbnum.

Elísa fór fyrst að nota hjólastól þegar hún var sex ára en hún er með hrörnunarsjúkdóm sem leggst á tauga- og ofnæmiskerfið. Elísa ætlar að nota stólinn heima við en þar hefur hún aðeins haft handknúinn stól.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×