Innlent

Þakklátir björgunarsveitarmönnum

Úr myndasafni.
Úr myndasafni.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn vilja koma á framfæri innilegu þakklæti við þær björgunarsveitir sem tóku þátt í björgun sex spænskra ferðamanna og leiðsögumanna þeirra af Vatnajökli í gær.

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar komust að hópnum skömmu eftir miðnætti í nótt. Hópurinn hafðist þá við í tjöldum á milli Grímsvatna og Esjufjalla.

Aðstæður á jöklinum voru erfiðar og veður slæmt. Ekkert amaði að fólkinu en komið var með það að Hala í Suðursveit á áttunda tímanum í morgun.

„Eins og oft áður unnu björgunarsveitarmenn vandað og óeigingjarnt starf við mjög erfiðar aðstæður og eiga heiður skilið fyrir framlag sitt til öryggis almennings og ferðamanna á Íslandi," segir í tilkynningu frá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum ehf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×