Innlent

Kokkar keppa í Höllinni

Sýningin Ferðalög og frístundir stendur yfir í Laugardalshöll um helgina þar sem kynnt eru tækifæri sem landsmönnum býðst til verja frítímanum hér heima og erlendis. Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni ferðaþjónustu og frístundamöguleika og vekja athygli á fyrirtækjum og stofnunum í þessum geira.

Þá keppa bestu kokkar Norðurlanda um titilinn Matreiðslumeistari Norðurlanda og skemmtiatriði af ýmsu tagi verða á sviði sýningarinnar, þar á meðal syngjandi leiðsögumaður. Sýningin Golf 2009 fer fram samhliða þar sem golfklúbbar kynna starfsemi sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×