Mörður: Steinunn Valdís vann ekki gegn mér 9. maí 2009 13:07 Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir að flokkssystur hans hafi ekki unnið gegn sér í kosningunum fyrir hálfum mánuði þegar 656 strikuðu yfir nafn hans. Mynd/Valgarður Gíslason
Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir að flokkssystur hans og þingmaðurinn, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, hafi ekki unnið gegn sér í kosningunum fyrir hálfum mánuði þegar 656 strikuðu yfir nafn hans. 1443 kjósendur Samfylkingarinnar strikuðu yfir nafn Steinunnar Valdísar. Mörður reynir í pistli á heimasíðu sinni að greina ástæður þess að fékk 656 útstrikanir í nýafstöðunum kosningum. Hann telur fjórar ástæður vera fyrir útstrikunum. Fyrir það fyrsta að hann sé umhverfissinni og vinstrisinnaður og að mörgum líki misjafnlega við sig. Þá segir hann sérkennilegar innanflokksástæður hafa unnið gegn sér.Auðvitað kom Steinunn Valdís hvergi nærri „Enn ein skýring sást í bloggi rétt eftir kosningarnar, sú að útstrikanir á mig hafi verið varnarviðbragð stuðningsmanna Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur þegar ljóst varð síðustu daga fyrir kosningar að hún mundi verða mjög útstrikuð," segir Mörður en bætir við að auðvitað sé þetta rugl. „Auðvitað kunna einhverjir vinir Steinunnar að hafa hugsað þessu líkt og einstaka maður látið það eftir sér í kjörklefanum, en að fólk hafi skipulagt svona held ég enganveginn, og veit að minnsta kosti að sjálf kom Steinunn Valdís hvergi nærri."Ósiðlegir styrkir Þá segir Mörður að ástæðan fyrir útstrikunum sé allavega ekki prófkjörsstyrkir frá FL-Group og Baugi. Slíkir styrkir séu teljandi á fingrum annarrar handar í sínu tilviki. „Viðurkenni að ég var hissa vikuna fyrir kosningar á milljónastyrkjunum sem fólk hafi fengið, þar á meðal flokksfélagar mínir og keppinautar í prófkjörum Samfylkingarinnar, og finnst þeir eiginlega ekki siðlegir," segir varaþingmaðurinn. Jafnframt segir Mörður að það veki athygli að hvað margir af þeim sem voru í fréttum vegna styrkja koma úr borgarstjórn Reykjavíkur. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Björn Ingi Hrafnsson, Helgi Hjörvar. „Er þetta tilviljun?" „Er þetta tilviljun? Eða er samgangur stjórnmálamanna og peningavalds kannski nánari í sveitarstjórnum en á þinginu?" spyr Mörður. Mörður segir að sveitarstjórnirnar séu öðruvísi en Alþingi að því leyti að þar fer sama fólkið með löggjafarvald og framkvæmdarvald. Margar ákvarðanir í sveitarstjórnum snerti hagsmuni verktaka og viðskiptamanna meira en atkvæðagreiðslur á Alþingi. „Er það tilviljun að hinir ofantöldu hafa allir komið við sögu hjá stórfyrirtækjum borgarinnar, veitum og höfn?" Pistil Marðar er hægt að lesa hér.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Sjá meira