Innlent

Ófært var til Seyðisfjarðar í morgun

Frá Seyðisfirði. Úr myndasafni.
Frá Seyðisfirði. Úr myndasafni.
Þrír fjallvegir eru ófærir, Eyrarfjall í Ísafjarðardjúpi, Lágheiði í Ólafsfirði og á Öxi ofan Berufjarðar. Þá var ófært til Seyðisfjarðar í morgun en Fjarðarheiði hefur nú opnast og þar sögð þæfingsfærð í tilkynningu Vegagerðarinnar upp úr klukkan eitt. Þar kemur fram að vetrarfærð sé um norðan- og austanvert landið og hálka er einnig á heiðum vestanlands.

Hálka og skafrenningur eru meðal annars á Mývatns - og Möðrudalsöræfum og á láglendi má geta þess að éljagangur er á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Þungfært er á Vatnsskarði eystra, þæfingsfærð á Breiðdalsheiði og snjóþekja og skafrenningur er á Fagradal og hálkublettir á Oddskarði. Skafrenningur er austan við Höfn í Hornafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×