Bretar svara ekki með beinum hætti 9. maí 2009 13:00
Breska forsætisráðuneytið svarar ekki með beinum hætti spurningum fréttastofu um hvað hafi legið að baki ummælum Browns forsætisráðherra Bretlands í þinginu fyrir helgi um viðræður við Alþjóða gjaldeyrissjóðsins vegna skulda Íslands. Í yfirlýsingu er forsætisráðherrann er aðeins sagður hafa átt við lánasamkomulag sjóðsins við Ísland og Icesave viðræðurnar. Fréttastofa sendi í gær fyrirspurn til breska forsætisráðuneytisins um svar Gordons Browns forsætisráðherra Bretlands við fyrirspurn í breska þinginu um miðja vikuna. Spurt var hvort forsætisráðherrann hefði blekkt breskan þingheim með að vísa ábyrgð á innistæðum í Kaupþing Singer og Friedlander til Íslendinga en það taldi fyrirspyrjandinn, íhaldsþingmaðurinn Graham Brady í viðtali við í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi og sagði hann líkast til hafa gert það óviljandi. Einnig var spurt hvort bresk stjórnvöld teldu að þau íslensku bæru ábyrgð á töpuðum innistæðum í bankanum. Einnig var spurt hvað forsætisráðherrann ætti við með viðræðum við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og við hverja aðra væri verið að ræða? Einnig var spurt hvort bresk stjórnvöld væru að beita þrýstingi í málinu hvað varðaði lánveitingar sjóðsins til Íslands og jafnvel mögulegar aðildarviðræður við Evrópusambandið.Brown var að vísa til samkomulags Íslands og AGS Svar forsætisráðuneytisins bars í gærkvöldi. Þar segir að Brown hafi í svari sínu fyrst vísað til taps Christie sjúkrahússins sem Brady spurði um og síða farið að ræða málið á breiðum grundvelli. Vissulega beri breska fjármálaeftirlitið ábyrgð í málefnum Kaupþings Singer og Friedlander sem var útibú Kaupþings í Bretlandi. Hann hafi hins vegar viljað benda á að íslenskum yfirvöldum bæri að borga tap sem þau bæru ábyrgð á. Í yfirlýsingunni segir að þegar forsætisráðherrann hafi rætt um viðræður við Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og aðra um hversu hratt Íslendingar geti borgað það sem þeir skuldi hafi Brown verið að vísað til samkomulags Íslands við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn sem Bretar styddu heilshugar. Í yfirlýsingunni fagnar forsætisráherra Breta þeirri skuldbindingu Íslands frá í nóvember að semja um lán frá Bretum svo endurgreiða megi Icesave innistæður. Enn væri eftir að semja um það.Brown meinti allt annað Í samtali við Fréttablaðið vildi fjölmiðlafulltrúi breska forsætisráðuneytisins ekki samþykkja að í svari Browns á þingi hafi hann annað hvort ekki gert sér grein fyrir mismunandi breskum reglum sem giltu um Kaupþing í Bretlandi annars vegar og Landsbankann hins vegar eða að Brown hafi blekkt þingheim. Hann hafi aðeins verið að setja málið í samhengi. Fjölmiðlafulltrúinn samþykkti ekki að hluti svarsins um Alþjóða gjaldeyrissjóðsins bæri ekki saman við skýringuna frá ráðuneytinu. Í samtalið við Fréttablaðið svara fjölmiðlafulltrúinn því til að í tíminn sé knappur í fyrirspurnartíma á breska þinginu og því hafi þetta komið svona út. Hann hafi hins vegar meint allt annað.Össur ánægður Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir í Morgunblaðinu í morgun að hann sé ánægður með það sem komi fram í yfirlýsingu breska forsætisráðuneytisins.
Tengdar fréttir Stjórnvöld tryggi að Ísland eigi öfluga talsmenn erlendis Stjórn Almannatengslafélag Íslands hvetur stjórnvöld til að tryggja að Ísland og Íslendingar eigi sér öfluga talsmenn erlendis, sem hafi umboð og tæki til að bregðast við neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun um leið og hún kemur upp. Það þolir ekki lengri bið, að fram kemur í ályktun stjórnar félagsins. 9. maí 2009 12:58 Stjórnvöld íhugi að slíta stjórnmálasambandi við Breta Stjórnvöld hafa ekki gætt hagsmuna Íslands nægilega vel gagnvart Bretum, að mati formanns Framsóknarflokks. Hann vill að íslensk stjórnvöld íhugi að slíta stjórnmálasambandi við Bretland fallist bresk stjórnvöld ekki á að aflétta beitingu hryðjuverkalaganna. Formaður Sjálfstæðisflokks segist ekki vera bjartsýnn á að hagstæðir samningar náist í Icesave deilunni. 9. maí 2009 12:01 Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Fleiri fréttir Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Sjá meira
Stjórnvöld tryggi að Ísland eigi öfluga talsmenn erlendis Stjórn Almannatengslafélag Íslands hvetur stjórnvöld til að tryggja að Ísland og Íslendingar eigi sér öfluga talsmenn erlendis, sem hafi umboð og tæki til að bregðast við neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun um leið og hún kemur upp. Það þolir ekki lengri bið, að fram kemur í ályktun stjórnar félagsins. 9. maí 2009 12:58
Stjórnvöld íhugi að slíta stjórnmálasambandi við Breta Stjórnvöld hafa ekki gætt hagsmuna Íslands nægilega vel gagnvart Bretum, að mati formanns Framsóknarflokks. Hann vill að íslensk stjórnvöld íhugi að slíta stjórnmálasambandi við Bretland fallist bresk stjórnvöld ekki á að aflétta beitingu hryðjuverkalaganna. Formaður Sjálfstæðisflokks segist ekki vera bjartsýnn á að hagstæðir samningar náist í Icesave deilunni. 9. maí 2009 12:01