Innlent

Nýtt þing kemur saman eftir viku

Guðbjartur Hanneson, forseti Alþingis.
Guðbjartur Hanneson, forseti Alþingis. Mynd/GVA
Nýtt þing kemur líklega saman eftir viku. Hugsanlega á föstudaginn en þó er líklegra að það verði ekki fyrir enn eftir næstu helgi. Að því gefnu að ný ríkisstjórn verði mynduð á morgun. Þetta sagði Guðbjartur Hannesson, sitjandi forseti Alþingis, í samtali við fréttastofu.

Búist er við því að ný ríkisstjórn verði kynnt síðdegis á morgun eftir að flokksráð Vinstri grænna og flokksstjórn Samfylkingarinnar hafa tekið afstöðu til stjórnarsáttmálans og ráðherralista sinna flokka. Þá verða haldnir tveir ríkisráðsfundir, fyrst fráfarandi stjórnar og síðan nýrrar stjórnar.

„Þetta getur þónokkuð marga daga en það þarf að undirbúa margt í þinginu," sagði Guðbjartur. Ganga þurfi frá hagnýtum atriðum varðandi setninguna og þá þurfi ný ríkisstjórn tíma til að undir mál sem lögð verða fyrir nýtt þing.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×