Viðbrögð við flensu mikil en skiljanleg 9. maí 2009 06:15 óttinn við flensuna Fólk víða um heim bjó sig undir heimsfaraldur á við spænsku veikina. Hér heima seldust rykgrímur upp í sumum apótekum. Myndin sýnir kennslustofu í Mexíkó. nordic photos/afp
Fyrstu fregnir af svínaflensunni í Mexíkó báru með sér að um banvæna sótt væri að ræða sem legðist þungt á þá sem fyrir henni urðu. Fólk um allan heim bjó sig undir það versta; að nýr faraldur á borð við spænsku veikina væri á leiðinni með tilheyrandi dauðsföllum. Nú, réttum hálfum mánuði síðan fyrstu fregnir bárust, hafa tæplega 2.500 manns sýkst, þar af um helmingur í Mexíkó, og 46 hafa látist. Það er því kannski ekki óeðlilegt að menn spyrji sig hvort viðbrögðin hafi verið út úr kortinu. Hvort það að hamstra flensulyf og rykgrímur hafi verið nauðsynlegt. Nefna má til samanburðar að í Bandaríkjunum einum deyja um 36 þúsund úr venjulegri flensu árlega og á bilinu 250 til 500 þúsund um allan heim. „Það er nú hægt að afsaka þessi viðbrögð í upphafi þar sem fyrstu fregnir báru með sér að pestin væri skæð. Þær voru einnig óljósar þannig að það var ekki verjandi annað en að hafa viðbúnað. Þetta voru óvissutímar og verður að fyrirgefast,“ segir Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir. Hann segir heilbrigðisyfirvöld hér hafa talað gegn því að fólk væri að hamstra lyf og grímur. Nægar birgðir séu til hjá yfirvöldum og hvað grímurnar varði séu það helst heilbrigðisstarfsmenn í návígi við sjúkdóminn sem þurfi á þeim að halda. Ýmsir, svo sem breski blaðamaðurinn Simon Jenkins, hafa velt því upp hvort stórfyrirtæki í lyfjaiðnaði og tengdum vörum ýti undir ótta fólks um heimsfaraldur. Þá hlaupi fjölmiðlar til í leit að æsifréttum og helli olíu á eldinn til að búa til góða frétt. Haraldur segir að vissulega stýri fjölmiðlar umræðunni og ráði miklu um þá stemningu sem ríkir. Hins vegar sé rétt að taka hættuna alvarlega, 41 ár sé síðan síðasti heimsfaraldur inflúensu kom upp og því líklegt að annar sé væntanlegur einhvern tímann á næstunni. Hve alvarlegur hann verði sé hins vegar ekki vitað. Svínaflensan er nú að þróast út í að verða inflúensa með nýrri veiru. Haraldur segir útbreiðsluna nú í takt við fyrstu bylgju slíkrar flensu og gera megi ráð fyrir að hún komi aftur upp í haust. Mikilvægt sé hins vegar að taka hlutunum með ró; nægur tími sé til stefnu og verið sé að vinna að þróun bóluefnis. „Það er engin ástæða til að vera með ofsahræðslu núna.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira