Innlent

Tjón meira en áætlað var

Viðlagatrygging hefur greitt út sex milljarða króna vegna tjóns í Suðurlandsskjálftanum í fyrra. Tjónið er orðið mun meira en áætlað var en frá áramótum hafa borist um þrjú hundruð nýjar tilkynningar um tjón. Búist er við að heildartjón vegna skjálftans verði sjö og hálfur milljarður.

Tilkynningar um tjón vegna Suðurlandsskjálftans halda áfram að berast þrátt fyrir að um ár sé að verða liðið frá skjálftanum. Viðlagatryggingu hafa borist tilkynningar um tjón á tæplega þrjú þúsund og fimm hundruð húseignum og um tvö þúsund og þrjú hundruð tilkynningar vegna tjóns á innbúum og lausafé. Ásgeir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar Íslands, segir að 4,7 milljarðar hafi verið greiddir út vegna tjóna á húseignum, einn milljarður vegna innbústjóna en auk vaxta sé því alls búið að greiða út um sex milljarða vegna tjóna í skjálftanum. Ásgeir segir að búist sé við að heildarkostnaður vegna tjóna verði 7,5 milljarðar króna.

Búið er að meta flest þau tjón sem tilkynnt voru strax eftir skjálftann en um þrjú hundruð nýjar tilkynningar hafa borist á þessu ár. Ekki verður hætt að taka við tilkynningum fyrr en árið 2012. Ásgeir segir að hann eigi von á að þegar fólk hefji viðgerðir á húsum sínum komi frekari skemmdir í ljós.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×