Lífið

Pör og systkini eftir vinnu

Hjónin Kristján og Melkorka vinna með systur Kristjáns og manni hennar, Tinnu og Dóa.
Hjónin Kristján og Melkorka vinna með systur Kristjáns og manni hennar, Tinnu og Dóa.

Hjón stýra hjónum og systkini vinna saman að nýju íslensku leikverki, Fyrir framan annað fólk. Verkið fjallar um hegðunarfrávik og afleiðingar þeirra, klikkun og ást.

„Það má segja að þetta sé lítið fjölskylduframtak. Ég hef lengi starfað sem rithöfundur og Tinna Hrafnsdóttir, systir mín, hefur starfað sem leikkona. Okkur hefur lengi langað til að vinna saman,“ segir Kristján Þórður Hrafnsson um nýtt verk sitt, Fyrir framan annað fólk.

„Það stóð þannig á að maðurinn hennar Tinnu, Sveinn Geirsson leikari, kallaður Dói, var á lausu þennan tíma þannig að okkur fannst upplagt að fá hann til að leika líka. Fyrst við vorum komin með þetta svona mikið inn í fjölskylduna varð niðurstaðan að konan mín, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, sem er leikstjóri og hefur leikstýrt töluvert, mest í Þjóðleikhúsinu, myndi leikstýra.“

Hvernig er að vinna með fjölskyldunni? „Þannig er að þegar maður er í svona listrænni samvinnu verður maður að loka á öll tengsl við fólkið í persónulega lífinu. Þegar við mætum á æfingar erum við listrænir samstarfsmenn en þegar æfingunni er lokið verðum við aftur pör og systkini.“ Hann bendir á að fjölmörg pör sé að finna í leiklistinni; Gísla og Nínu í Vestur­porti, Atla Rafn og Brynhildi, Þórhildi Þorleifs og Arnar Jóns.

Hegðunarfrávik, fáránleiki, klikkun og ást eru umfjöllunarefni sýningarinnar. „Það má eiginlega segja að þetta sé verk sem fjalli á kómískan hátt um stjórnleysi í sálarlífinu. Söguþráðurinn er sá að maður og kona verða ástfangin. Upp úr þurru fer maðurinn að hegða sér mjög einkennilega og skyndilega hefur þessi geðþekki maður misst allt taumhald á sjálfum sér. Orsökin er nákvæmlega sömu eiginleikar og áður gerðu hann skemmtilegan og heillandi. Þá fer að reyna á sambandið.“

Frumsýning er áætluð seinni hlutann í september í Hafnarfjarðar­leikhúsinu.- kbs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.