Skuldavandinn ekki jafn mikill og sagt er 4. júní 2009 05:45 staða heimilanna „Gegndarlaus yfirboð um skuldaniðurfellingar í ýmsu formi sem dynja á almenningi eru hins vegar fullkomlega ábyrgðarlaus,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í gær. fréttablaðið/Anton
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að skuldavandi heimilanna sé ekki eins víðtækur og ýmsir hafi haldið fram. Nýjar upplýsingar frá Seðlabankanum um eignir og skuldir heimilanna sýni það. Í þingumræðu um stöðu heimilanna í gær sagði Jóhanna tölur Seðlabankans sýna að þrjú af hverjum fjórum heimilum með fasteignaveðlán verji innan við 30 prósent ráðstöfunartekna sinna til að standa undir fasteignalánum og fjögur af hverjum fimm heimilum verji innan við tuttugu prósent af ráðstöfunartekjum sínum í bílalán. „Langstærsti hluti heimila landsins býr því við viðráðanlega greiðslubyrði vegna fasteigna- og bílalána,“ sagði Jóhanna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sem óskaði eftir umræðunni, hafði aðra sögu að segja í framsögu sinni. Tíundaði hann nýjar tölur frá Fjármálaeftirlitinu og Creditinfo um vanskil einstaklinga. Hefðu þau aukist stórum og væru tæplega nítján þúsund manns á vanskilaskrá. Sigmundur sagði afskriftir lána óumflýjanlegar og kvað ríkisstjórnina þurfa að taka af skarið. Hún stæði aðgerðalaus gagnvart vandanum og svo virtist sem hún þyrði ekki að taka ákvarðanir. Jóhanna sagði Sigmund mála myndina of dökkum litum og vitnaði sjálf til talna um nauðungarsölur fasteigna og gjaldþrotabeiðnir. Sagði hún beiðnum um nauðungarsölur hafa fjölgað um tvö prósent á fyrstu fjórum mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra og gjaldþrotum einstaklinga hefði fækkað. Jóhanna sagðist ekki draga úr þeim vanda sem fjöldi fólks stæði frammi fyrir vegna gjörbreyttra aðstæðna í samfélaginu. En við blasti að úrræði ríkisstjórnarinnar virkuðu og að þau ættu að duga langstærstum hluta þeirra sem nú væru í vanda vegna húsnæðisskulda. „Við þurfum hins vegar að tryggja að þeir sem eru í vanda fái nauðsynlegan stuðning og ekki síður upplýsingar um þau úrræði sem í boði eru.“ Ræður stjórnarandstæðinga voru á sömu lund og Sigmundar; ríkisstjórnin hefði ekki skilning á vandanum, væri úrræðalaus og gerði ekkert með hugmyndir annarra.bjorn@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira