Innlent

Skuldavandinn ekki jafn mikill og sagt er

staða heimilanna „Gegndarlaus yfirboð um skuldaniðurfellingar í ýmsu formi sem dynja á almenningi eru hins vegar fullkomlega ábyrgðarlaus,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í gær. fréttablaðið/Anton
staða heimilanna „Gegndarlaus yfirboð um skuldaniðurfellingar í ýmsu formi sem dynja á almenningi eru hins vegar fullkomlega ábyrgðarlaus,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í gær. fréttablaðið/Anton

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að skuldavandi heimilanna sé ekki eins víðtækur og ýmsir hafi haldið fram. Nýjar upplýsingar frá Seðlabankanum um eignir og skuldir heimilanna sýni það.

Í þingumræðu um stöðu heimilanna í gær sagði Jóhanna tölur Seðlabankans sýna að þrjú af hverjum fjórum heimilum með fasteignaveðlán verji innan við 30 prósent ráðstöfunartekna sinna til að standa undir fasteignalánum og fjögur af hverjum fimm heimilum verji innan við tuttugu prósent af ráðstöfunartekjum sínum í bílalán.

„Langstærsti hluti heimila landsins býr því við viðráðanlega greiðslubyrði vegna fasteigna- og bílalána,“ sagði Jóhanna.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sem óskaði eftir umræðunni, hafði aðra sögu að segja í framsögu sinni. Tíundaði hann nýjar tölur frá Fjármálaeftirlitinu og Creditinfo um vanskil einstaklinga. Hefðu þau aukist stórum og væru tæplega nítján þúsund manns á vanskilaskrá.

Sigmundur sagði afskriftir lána óumflýjanlegar og kvað ríkisstjórnina þurfa að taka af skarið. Hún stæði aðgerðalaus gagnvart vandanum og svo virtist sem hún þyrði ekki að taka ákvarðanir.

Jóhanna sagði Sigmund mála myndina of dökkum litum og vitnaði sjálf til talna um nauðungarsölur fasteigna og gjaldþrotabeiðnir. Sagði hún beiðnum um nauðungarsölur hafa fjölgað um tvö prósent á fyrstu fjórum mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra og gjaldþrotum einstaklinga hefði fækkað.

Jóhanna sagðist ekki draga úr þeim vanda sem fjöldi fólks stæði frammi fyrir vegna gjörbreyttra aðstæðna í samfélaginu. En við blasti að úrræði ríkisstjórnarinnar virkuðu og að þau ættu að duga langstærstum hluta þeirra sem nú væru í vanda vegna húsnæðisskulda. „Við þurfum hins vegar að tryggja að þeir sem eru í vanda fái nauðsynlegan stuðning og ekki síður upplýsingar um þau úrræði sem í boði eru.“

Ræður stjórnarandstæðinga voru á sömu lund og Sigmundar; ríkisstjórnin hefði ekki skilning á vandanum, væri úrræðalaus og gerði ekkert með hugmyndir annarra.bjorn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×