Innlent

Fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubarni

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi Jóhann Sigurðarson í fjögurra ára fangelsi í desember síðastliðnum fyrir að hafa brotist inn á heimili um miðja nótt og sleikt kynfæri fimm ára gamlar stúlku. Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari, skilaði sératkvæði en hann taldi hæfilega refsingu vera þrjú ár.

Jóhann fór í heimildarleysi inn í hús við Grettisgötu í Reykjavík í september 2008. Hann fór inn um glugga á efri hæð hússins og því næst inn í svefnherbergi á neðri hæð þar sem telpan svaf við hlið ömmu sinnar. Því næst færði Jóhann stelpuna úr náttbuxum og nærbuxum og sleikti kynfæri hennar. Við það vaknaði amman og stúlkan og hljóp maðurinn þá á brott.

Lögreglan hóf strax leit að manninum um nóttina en án árangurs. Lýsing á manninum sem og fingrafar sem fannst á vettvangi passaði þó við Jóhann. Hann neitaði sök allan tímann og segist ekki hafa munað eftir sér frá því hann fór á skemmtistaðinn Grand Rokk umrætt kvöld og þar til hann vaknaði um hádegisbil heima hjá sér.

Fingrafarið fannst þó innan á rúðu við hliðina á útidyrahurðinni sem búið var að brjóta upp. Einnig fannst hráki á tröppum hússins, sem við DNA-rannsókn reyndist vera úr honum. Jóhann gat ekki gefið skýringu á því hversvegna fingrafar hans og hráki hefðu verið á staðnum.

Líkt og fyrr segir er sakaferill Jóhanns nokkuð langur m.a hefur hann verið fundinn sekur um að hafa veist að konu á salerni veitingahúss, farið höndum um líkama hennar, fellt hana í gólfið, barið höfði hennar margsinnis í vegg, dregið buxur hennar og nærbuxur niður að hnjám og farið höndum um kynfæri hennar.

Hann hefur einnig verið dæmdur fyrir að hafa farið í tvígang inn í íbúðarhús um hánótt og tekið fjögurra ára gamalt stúlkubarn sofandi úr rúmi sínu og farið með það út úr húsi um hánótt um miðjan vetur.

Jóhann kvaðst þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi ekki vera haldinn barnagrind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×