Fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubarni 4. júní 2009 16:32
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi Jóhann Sigurðarson í fjögurra ára fangelsi í desember síðastliðnum fyrir að hafa brotist inn á heimili um miðja nótt og sleikt kynfæri fimm ára gamlar stúlku. Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari, skilaði sératkvæði en hann taldi hæfilega refsingu vera þrjú ár. Jóhann fór í heimildarleysi inn í hús við Grettisgötu í Reykjavík í september 2008. Hann fór inn um glugga á efri hæð hússins og því næst inn í svefnherbergi á neðri hæð þar sem telpan svaf við hlið ömmu sinnar. Því næst færði Jóhann stelpuna úr náttbuxum og nærbuxum og sleikti kynfæri hennar. Við það vaknaði amman og stúlkan og hljóp maðurinn þá á brott. Lögreglan hóf strax leit að manninum um nóttina en án árangurs. Lýsing á manninum sem og fingrafar sem fannst á vettvangi passaði þó við Jóhann. Hann neitaði sök allan tímann og segist ekki hafa munað eftir sér frá því hann fór á skemmtistaðinn Grand Rokk umrætt kvöld og þar til hann vaknaði um hádegisbil heima hjá sér. Fingrafarið fannst þó innan á rúðu við hliðina á útidyrahurðinni sem búið var að brjóta upp. Einnig fannst hráki á tröppum hússins, sem við DNA-rannsókn reyndist vera úr honum. Jóhann gat ekki gefið skýringu á því hversvegna fingrafar hans og hráki hefðu verið á staðnum. Líkt og fyrr segir er sakaferill Jóhanns nokkuð langur m.a hefur hann verið fundinn sekur um að hafa veist að konu á salerni veitingahúss, farið höndum um líkama hennar, fellt hana í gólfið, barið höfði hennar margsinnis í vegg, dregið buxur hennar og nærbuxur niður að hnjám og farið höndum um kynfæri hennar. Hann hefur einnig verið dæmdur fyrir að hafa farið í tvígang inn í íbúðarhús um hánótt og tekið fjögurra ára gamalt stúlkubarn sofandi úr rúmi sínu og farið með það út úr húsi um hánótt um miðjan vetur. Jóhann kvaðst þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi ekki vera haldinn barnagrind.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Vísbendingar um aukna kjörsókn Innlent Fleiri fréttir Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Sjá meira