Gerð stöðugleikasáttmálans í uppnámi 4. júní 2009 13:21 Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Mynd/GVA „
Það hefur legið fyrir að hálfu atvinnurekenda ef að þessi vaxtastefna á að vera við lýði þá muni þeir ekki með nokkru móti geta komið til móts við okkur varðandi launaliðinn. Þá er viðræðum um stöðugleikasáttmála sjálfhætt en þær eru í uppnámi núna," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að lækka stýrivexti úr 13% í 12%. Gylfi segir stöðuna grafalvarlega og að ákvörðun bankans sé mikil vonbrigði. „Við sjáum þetta ekki sem neinn grundvöll til að vinna út frá." Verkalýðshreyfingin hafi undanfarnar vikur reynt að gera ríkisstjórninni og þá sérstaklega Seðlabankanum grein fyrir því að með núverandi vaxtastefnu, sem búið sé að teikna upp af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Seðlabankanum, stefni í mikið óefni. Gylfi segir að viðræður aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar hafi gengið ágætlega. Aftur á móti sé Seðlabankinn með ákvörðun sinni að hrekja verkalýðshreyfinguna frá samningaborðinu. „Ríkisstjórnin hefur vissulega mannað þetta betur en við höfum séð margar ríkisstjórnir gera áður og það voru allar líkur á því að við myndum ná saman," segir Gylfi sem er ekki bjartsýnn á framhaldið. „Það eru verulegar líkur á þetta fari í sundur." Boðað hefur verið til viðræðufundar í Karphúsinu í fyrramálið.
Tengdar fréttir Ákvörðun Seðlabankans rædd á Alþingi Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti úr 13% í 12% var rædd á Alþingi í morgun en þingmenn vildu almennt sjá meiri lækkun. 4. júní 2009 10:58 Varfærin lækkun gefur færi á afnámi gjaldeyrishafta Arnór Sighvatsson aðstoðar Seðlabankastjóri las upp yfirlýsingu peningastefnunefdar á blaðamannafundi í Seðlabankanum nú fyrir stundu en stýrivextir voru lækkaðir um eitt prósentustig úr 13 í 12 prósent líkt og greint hefur verið frá. Hann sagði markaðsvxti hafa lækkað umtalsvert frá maíbyrjun. Skammtímavextir hafi hækkað um u.þ.b fjórar prósentur og raun- og nafnvextir langtímaskuldabréfa um 0,5 og 1,5 prósentur. Fyrir vikið sagði hann að ávöxtunarferillinn hefði orðið flatari en áður, sem hvetur fjárfesta til þess að auka hlutdeild langtímaskuldabréfa í eignasöfnum. Hann sagði innlánsvextir hafa einnig lækkað umtalsvert. 4. júní 2009 11:19 Stýrivextir úr 13 í 12 prósent Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11. 4. júní 2009 09:00 Vill stýrivexti niður í fjögur prósent Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við fréttastofu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans mikil vonbrigði. Fyrirtækin komist ekki í gang og kostnaður ríkisins af vöxtum jöklabréfa aukist. 4. júní 2009 09:39 Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri. 4. júní 2009 09:25 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira
Ákvörðun Seðlabankans rædd á Alþingi Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti úr 13% í 12% var rædd á Alþingi í morgun en þingmenn vildu almennt sjá meiri lækkun. 4. júní 2009 10:58
Varfærin lækkun gefur færi á afnámi gjaldeyrishafta Arnór Sighvatsson aðstoðar Seðlabankastjóri las upp yfirlýsingu peningastefnunefdar á blaðamannafundi í Seðlabankanum nú fyrir stundu en stýrivextir voru lækkaðir um eitt prósentustig úr 13 í 12 prósent líkt og greint hefur verið frá. Hann sagði markaðsvxti hafa lækkað umtalsvert frá maíbyrjun. Skammtímavextir hafi hækkað um u.þ.b fjórar prósentur og raun- og nafnvextir langtímaskuldabréfa um 0,5 og 1,5 prósentur. Fyrir vikið sagði hann að ávöxtunarferillinn hefði orðið flatari en áður, sem hvetur fjárfesta til þess að auka hlutdeild langtímaskuldabréfa í eignasöfnum. Hann sagði innlánsvextir hafa einnig lækkað umtalsvert. 4. júní 2009 11:19
Stýrivextir úr 13 í 12 prósent Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11. 4. júní 2009 09:00
Vill stýrivexti niður í fjögur prósent Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við fréttastofu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans mikil vonbrigði. Fyrirtækin komist ekki í gang og kostnaður ríkisins af vöxtum jöklabréfa aukist. 4. júní 2009 09:39
Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri. 4. júní 2009 09:25