Ákvörðun Seðlabankans rædd á Alþingi 4. júní 2009 10:58 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti úr 13% í 12% var rædd á Alþingi í morgun en þingmenn vildu almennt sjá meiri lækkun. Tryggvi Þór Herbertsson sagði ákvörðunina endurspegla aðgerðarleysiskostnað ríkisstjórnarinnar og að svo virtist sem að stjórnarflokkarnir hefðu engin ráð og lausnir. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, sagði ósanngjarnt að tala um aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar og að ómaklegt væri að segja að ekkert væri verið að gera. Sjálfur hefði hann vonast eftir að lækkunin yrði meiri. Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði ákvörðunina skiljanlega í ljósi aðstæðna. Hann sagði bankann ekki geta lækkað vexti á kostnað gengisstöðugleika. Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði augljóst að vextirnir lækkuðu ekki meira vegna þess að ekki liggi fyrir raunhæf áætlun í ríkisfjármálum. Auk þes sagði hann ríkisstjórnina hafa verið mislagðar hendur við að koma saman bankakerfinu. Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, sagði ljóst að ríkisstjórnin hefði brugðist. Þá sagði Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, stýrivaxtalækkunina alltof litla og að stjórnvöld hefðu lagt fram allar þær upplýsingar sem þyrfti til að lækka vextina umtalsvert.
Tengdar fréttir Stýrivextir úr 13 í 12 prósent Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11. 4. júní 2009 09:00 Vill stýrivexti niður í fjögur prósent Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við fréttastofu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans mikil vonbrigði. Fyrirtækin komist ekki í gang og kostnaður ríkisins af vöxtum jöklabréfa aukist. 4. júní 2009 09:39 Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri. 4. júní 2009 09:25 Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira
Stýrivextir úr 13 í 12 prósent Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11. 4. júní 2009 09:00
Vill stýrivexti niður í fjögur prósent Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við fréttastofu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans mikil vonbrigði. Fyrirtækin komist ekki í gang og kostnaður ríkisins af vöxtum jöklabréfa aukist. 4. júní 2009 09:39
Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri. 4. júní 2009 09:25