Skipa aðra Evrópunefnd 31. janúar 2008 10:41 Illugi Gunnarsson er annar formanna nefndarinnar. MYND/GVA
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að setja á laggirnar nefnd um þróun Evrópumála undir forystu Illuga Gunnarssonar og Ágústs Ólafs Ágústssonar þingmanna. Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að þetta sé gert ísamræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Í nefndinni eiga einnig sæti fulltrúar stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi, einn frá hverjum flokki. Að auki býðst Alþýðusambandi Íslands, Samtökum opinberra starfsmanna, Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði Íslands að tilnefna hvert einn fulltrúa í nefndina. Verkefni nefndarinnar verður að fylgja eftir tillögum Evrópunefndar frá mars 2007 um aukna þátttöku stjórnmálamanna og embættismanna í hagsmunagæslu tengdri Evrópustarfi, að athuga frekar hvernig hagsmunum Íslendinga verði best borgið í framtíðinni gagnvart Evrópusambandinu á grunni niðurstaðna Evrópunefndarinnar og að fylgjast með þróun mála í Evrópu og leggja mat á breytingar út frá hagsmunum Íslendinga. Nefndin ákveður sjálf hvaða málaflokka hún tekur fyrir en skal eftir því sem tilefni er til, standa fyrir útgáfu, samráðsfundum með hagsmunaaðilum og heimsóknum erlendra sérfræðinga. Nefndin skal starfrækja vefsíðu þar sem starfsáætlun, fundargerðir og ítarefni er birt. Nefndin á að skila ríkisstjórninni skýrslu árlega en hún starfar á vegum forsætisráðuneytis en utanríkisráðuneytið og sendiráð veita nauðsynlega aðstoð. Reiknað er með að hún starfi til 1. febrúar 2011, eða nánast út kjörtímabilið.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira