Innlent

Sendinefnd frá Katar skoðar orku- og fjármálafyrirtæki

Katararnir funda meðal annars með forsetanum Ólafi Ragnari Grímssyni.
Katararnir funda meðal annars með forsetanum Ólafi Ragnari Grímssyni. MYND/Hrönn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundar í dag með sendinefnd frá Katar sem hingað er komin til að kynna sér íslensk orkufyrirtæki og fjármálastofnanir.

Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að sendinefndin komi í framhaldi af opinberri heimsókn forseta Íslands til Katars í janúar síðastliðnum og í tengslum við fundi sem forsetinn átti með Amírnum, þjóðhöfðingja Katars, í síðasta mánuði. Sendinefndin mun einnig eiga fundi með Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra og heimsækja íslensk orkufyrirtæki og fjármálastofnanir.

„Sendinefndina skipa, auk sendiherra Katars á Íslandi, forstjóri Qatar Petroleum International sem er helsta fyrirtæki ríkisins á sviði orkuframleiðslu og fulltrúar Qatar Investment Authority sem er fjárfestingastofnun ríkisins og Qatar Science and Technology Park sem tengist Qatar Foundation en sú stofnun hefur forystu á sviði tækni, vísinda og mennta í Katar.

Leiðtogar Katars hafa mikinn áhuga á hátækni og sjálfbærri orkuframleiðslu. Þeir vilja kynna sér hvaða árangri Íslendingar hafa náð á þessum sviðum og kanna möguleika á frekari samvinnu," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×