Fráfarandi bæjarstjóri á launum til 2010 Magnús Már Guðmundsson skrifar 10. júlí 2008 14:35 Ólafur Örn Ólafsson, fráfarandi bæjarstjóri Grindavíkurbæjar.
Ólafur Örn Ólafsson fráfarandi bæjarstjóri í Grindavík sem lætur af störfum þegar nýr meirihluti tekur við á auka bæjarstjórnarfundi eftir helgi hefur rétt á biðlaunum fram í nóvember 2010 samkvæmt ráðningarsamningi við bæjarfélagið. Ráðningartími Ólafs er út yfirstandi kjörtímabil og af honum loknum fær hann að auki sex mánaða laun. Næstu sveitarstjórnarkosningar fara fram í maí 2010. Ólafur fær því greidd laun í 28 mánuði frá og með næsta mánuði. Í dag eru mánaðarlaun Ólafs rúmlega 1,2 milljónir króna og þau eru verðtryggð samkvæmt Jóni Þórissyni, fjármálastjóra Grindavíkurbæjar. Heildarlaun Ólafs frá og með næstu mánaðarmótum og út ráðningartímabilið eru tæplega 34 milljónir króna. Inn í þá tölu reiknast ekki greiðslur vegna aksturs og símanotkunar. Heildarkostnaður Grindavíkurbæjar með launatengdum gjöldum er ríflega 42 milljónir króna. Ólafur er erlendis í fríi og af þeim sökum hefur ekki náðst í hann. Vísir hefur ekki heimildir fyrir öðru en að Ólafur muni þiggja þau laun sem hann samdi um við bæjarfélagið í upphafi yfirstandandi kjörtímabils. ,,Þetta er samningur sem var gerður við bæjarstjórann og okkur er ekki stætt á öðru en að standa við þann samning. Hann er ráðinn út kjörtímabilið," segir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og tilvonandi bæjarstjóri. Guðmundur Pálsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir starfslokasamninginn sambærilegan við kjör bæjarstjóra í bæjarfélögum að svipaðri stærðargráðu og Grindavík. ,,Þetta eru gífurlegir peningar fyrir bæjarsjóð sem menn telja eðlilegt að bæjarsjóður greiði fyrir framapot," segir Guðmundur og bætir við að ábyrgðin liggi hjá Samfylkingunni og Framsóknarflokknum. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking mynduðu meirihluta í kjölfar bæjarstjórnarkosninganna í maí 2006. Upp úr því samstarfi slitnaði í vikunni og hafa Framsóknarflokkur og Samfylking ákveðið að mynda nýjan meirihluta frá og með næsta mánudegi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira