Innlent

Fráfarandi bæjarstjóri á launum til 2010

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Ólafur Örn Ólafsson, fráfarandi bæjarstjóri Grindavíkurbæjar.
Ólafur Örn Ólafsson, fráfarandi bæjarstjóri Grindavíkurbæjar.

Ólafur Örn Ólafsson fráfarandi bæjarstjóri í Grindavík sem lætur af störfum þegar nýr meirihluti tekur við á auka bæjarstjórnarfundi eftir helgi hefur rétt á biðlaunum fram í nóvember 2010 samkvæmt ráðningarsamningi við bæjarfélagið.

Ráðningartími Ólafs er út yfirstandi kjörtímabil og af honum loknum fær hann að auki sex mánaða laun. Næstu sveitarstjórnarkosningar fara fram í maí 2010. Ólafur fær því greidd laun í 28 mánuði frá og með næsta mánuði.

Í dag eru mánaðarlaun Ólafs rúmlega 1,2 milljónir króna og þau eru verðtryggð samkvæmt Jóni Þórissyni, fjármálastjóra Grindavíkurbæjar. Heildarlaun Ólafs frá og með næstu mánaðarmótum og út ráðningartímabilið eru tæplega 34 milljónir króna. Inn í þá tölu reiknast ekki greiðslur vegna aksturs og símanotkunar. Heildarkostnaður Grindavíkurbæjar með launatengdum gjöldum er ríflega 42 milljónir króna.

Ólafur er erlendis í fríi og af þeim sökum hefur ekki náðst í hann. Vísir hefur ekki heimildir fyrir öðru en að Ólafur muni þiggja þau laun sem hann samdi um við bæjarfélagið í upphafi yfirstandandi kjörtímabils.

,,Þetta er samningur sem var gerður við bæjarstjórann og okkur er ekki stætt á öðru en að standa við þann samning. Hann er ráðinn út kjörtímabilið," segir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og tilvonandi bæjarstjóri.

Guðmundur Pálsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir starfslokasamninginn sambærilegan við kjör bæjarstjóra í bæjarfélögum að svipaðri stærðargráðu og Grindavík. ,,Þetta eru gífurlegir peningar fyrir bæjarsjóð sem menn telja eðlilegt að bæjarsjóður greiði fyrir framapot," segir Guðmundur og bætir við að ábyrgðin liggi hjá Samfylkingunni og Framsóknarflokknum.

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking mynduðu meirihluta í kjölfar bæjarstjórnarkosninganna í maí 2006. Upp úr því samstarfi slitnaði í vikunni og hafa Framsóknarflokkur og Samfylking ákveðið að mynda nýjan meirihluta frá og með næsta mánudegi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×