„Evra þýðir innganga í ESB, það sagði ég“ Breki Logason skrifar 16. desember 2008 14:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir MYND/GVA
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að Alf Skjeset blaðamaður norska dagblaðsins Klassekampen hafi ekki haft rangt eftir sér í viðtali sem hann tók við hana. Af fréttum í gær mátti skilja að Þorgerður teldi að eina leiðin fyrir okkur væri innganga í Evrópusambandið. Hún segir það hinsvegar eingöngu eiga við peningamálastefnuna því evran verði ekki tekin upp nema með inngöngu. „Þetta er fínt viðtal hjá honum Alf og ég lagði sérstaka áherslu á að það yrði tekið upp. Ég er nefnilega ekki að segja neitt nýtt. Ég hef sagt að við ættum að fara í aðildarviðræður með þeim fyrirvörum sem snúa að sjávarútvegi og annað," segir Þorgerður í samtali við Vísi. Þorgerður segir að það sem snúi að peningamálastefnunni hafi verið haft rétt eftir sér en þar hefur hún verið að taka undir með aðalhagfræðingi Seðlabanka Íslands. „Ef við tölum um peningamálastefnuna þá sé ég ekki lausn utan Evrópusambandsins ef við ætlum að taka upp evru. Það er annaðhvort að halda í krónuna eða evra. Og evra þýðir innganga í ESB, það sagði ég," segir Þorgerður. Hún segir hinsvegar að þýðing Ríkisútvarpsins á frétt Klassekampen síðan í gær þar sem því var haldið fram að hún teldi einu lausnina í okkar málum almennt séð vera innganga í Evrópusambandið ekki vera rétta.
Tengdar fréttir Staðfestir að hann eigi hljóðritun af símtali við Þorgerði Alf Skjeset, blaðamaður norska blaðsins Klassekampen, staðfesti í samtali við Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis í morgun, að hann eigi hljóðritað samtal milli sín og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þar sem meðal annars er rætt um framtíðarstefnu Íslendinga í peningamálum. 16. desember 2008 12:48 Rangt haft eftir Þorgerði varðandi ESB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa sagt að Evrópusambandið væri okkar eini möguleiki líkt og norska dagblaðið Klassekampen heldur fram í dag. Þorgerður segist hafa farið í viðtal við blaðið fyrir 10 dögum og þar hafi hún sagt að við ættum að fara í aðildarviðræður. Hún stendur við þá skoðun sína. 15. desember 2008 13:16 Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur viðburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira
Staðfestir að hann eigi hljóðritun af símtali við Þorgerði Alf Skjeset, blaðamaður norska blaðsins Klassekampen, staðfesti í samtali við Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis í morgun, að hann eigi hljóðritað samtal milli sín og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þar sem meðal annars er rætt um framtíðarstefnu Íslendinga í peningamálum. 16. desember 2008 12:48
Rangt haft eftir Þorgerði varðandi ESB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa sagt að Evrópusambandið væri okkar eini möguleiki líkt og norska dagblaðið Klassekampen heldur fram í dag. Þorgerður segist hafa farið í viðtal við blaðið fyrir 10 dögum og þar hafi hún sagt að við ættum að fara í aðildarviðræður. Hún stendur við þá skoðun sína. 15. desember 2008 13:16