Innlent

Lögregla leitar manna vegna líkamsárásar á Ljósanótt

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum rannsakar nú líkamsárás á Ljósanótt og óskar eftir upplýsingum um málið.

Árásin átti sér stað á Ljósanótt eða að morgni sunnudagsins 7. september klukkan hálfsex. Á þeim tíma voru lögreglumenn á eftirlitsferð þegar þeir komu að meðvitundarlausum manni liggjandi á Hringbraut í Keflavík til móts við Mávabraut.

Kona sem var hjá manninum sagðist hafa séð menn hraða sér í burtu á rauðri Honda Accord bifreið. Lögreglan óskar eftir að ná tali af konunni og biður jafnframt önnur vitni sem hugsanlega kunna að vera að þessu atviki að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum í síma 420-1700.

Þá óskar lögreglan eftir því að mennirnir á umræddri bifreið hafi samband við lögregluna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×