Innlent

Auðveldara að leita réttar síns sem neytandi en skattgreiðandi

Auðveldara virðist vera að leita réttar síns sem neytandi en sem skattgreiðandi sé litið á úrræðamöguleika sem maður hefur. Ef skatturinn eða tollurinn bregst að koma með skýringar eru það helst formlegt bréf til þeirra, yfirskattanefnd eða umboðsmaður Alþingis sem leita þarf til. Á meðan ætti að vera hægt að leita bæði til talsmanna neytenda og Netendasamtakanna með mál varðandi fyrirtæki í landinu.

Eins og sagði á Vísi í gær þá lenti Frank Cassata í því að fá þrjá reikninga á bilinu 30-40 þúsund. Eftir að hafa reynt að leita skýringa á þessum háu gjöldum án árangurs borgaði hann gjöldin til þess að sleppa við innheimtu. Skatturinn endurgreiddi síðan nýverið gjöldin á jafn skýringarlítinn hátt og hann innheimti þau. Frank sá engar skýringar á reikningunum aðrar en Framkvæmdasjóð aldraðra.

Vísir fór á stúfana í dag til þess að reyna að finna út hvert skattgreiðendur ættu að leita ef þeir fái illskiljanlega reikninga frá skattinum eða hinu opinbera

Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson sagði að þarna hefði verið um að ræða gjöld frá tollinum án þess að geta gefið upp meiri upplýsingar um hvers konar gjöld væri að ræða eða af hverju þau hefðu verið endurgreidd. Hann sagði hins vegar að ef fólk lenti í þeirri aðstöðu að fá engin svör varðandi illskiljanlega reikninga þá væri besta leiðin að senda skattinum formlegt bréf. Hann gat ekki svarað því hve langan tíma tæki að standa í slíkum formlegum bréfasamskiptum, oft væri mikið að gera hjá þeim, en þeir reyndu að sinna öllum slíkum málum eins fljótt og unnt væri.

Bæði Neytendasamtökin og Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason sögðu að skattamál væru ekki á þeirra könnu þar sem ekki um neytendamál væri að ræða. Ef slík mál kæmi á borð til þeirra bentu þeir fólki áfram til viðeigandi aðila sem væri þá fyrst ríkisskattstjóri en annars gjarnan umboðsmaður Alþingis,yfirskattanefnd eða jafnvel til lögfræðings.

Samkvæmt heimildum Vísis er þó um talsvert ferli að ræða sé málum vísað til slíkra aðila en ekki um skýringu eða leiðréttingu sem hægt feng stuttu eftir að maður fengi sjálfan reikninginn.

Aðspurður taldi Gísli það geta mögulega verið auðveldara og einfaldara að leita sér réttar gegn fyrirtækjum en gegn hinu opinbera þótt einstaklingar hafi vissulega meiri lagalegan rétt gegn ríkinu en fyrirtækjum. Hann benti á að í umræðunni hefði verið að stofna embætti umboðsmanns skattgreiðenda eins og hafi verið gert með embætti umboðsmanns barna eða Alþingis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×