Fær eina milljón sænskar 21. október 2008 05:30 Steinunn segir verðlaunin færa mikla von og vera gott dæmi um hve nýsköpun á Íslandi skiptir miklu máli. Fréttablaðið/Haraldur Jónasson „
Mér finnst þetta rosalega stór viðurkenning því þetta er í fyrsta skipti sem þeir veita þessi verðlaun fyrir fatahönnun," segir Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður sem hlýtur hin sænsku Söderbergs-verðlaun í ár. Steinunn hefur að sögn dómnefndar meðal annars fært Norðurlöndunum virtan fulltrúa á hinu alþjóðlega tískusviði með innblæstri frá íslenskri náttúru, en Söderbergs-verðlaunin eru ein stærstu hönnunarverðlaun heims, með 1.000.000 sænskar krónur í verðlaunafé. „Það er ótrúlega skemmtilegt að verðlaunin skuli fara til Íslendings. Eftir atburði síðustu mánaða hefur það breyst hvernig maður lítur á þau. Mér finnst verðlaunin færa mikla von og minna á að við eigum ekki að leggja árar í bát. Mér finnst rosalega mikilvægt að það sé lögð meiri áhersla á nýsköpun á Íslandi og mér finnst þessi verðlaun vera gott dæmi um það," segir Steinunn. Hún mun taka við verðlaununum við hátíðlega athöfn 4. nóvember í Röhsska-safninu í Gautaborg, þar sem haldin verður sýning á hönnun Steinunnar í kjölfarið. Steinunn er nú í óðaönn að undirbúa næstu línu sem verður tilbúin í febrúar. Hún segist ætla að koma verðlaunafénu inn í fyrirtækið og segist óhjákvæmilega finna fyrir afleiðingum kreppunnar. „Það eru færri sem leggja út í að kaupa af nýjum hönnuðum, fólk hefur minni kaupmátt og pantanirnar eru ekki eins stórar, en maður verður að halda sínu striki og vona það besta."
Mest lesið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið Fleiri fréttir Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Sjá meira