Enn óvissa 16 dögum eftir að myntkörfulán voru fryst 30. október 2008 18:33
Sextán dagar eru síðan ríkisstjórnin krafðist þess að ríkisbankarnir frystu afborganir landsmanna af myntkörfulánum. Enn ríkir alger óvissa um hvort eitthvað verði gert til að mæta vanda þeirra sem tóku lán í íslenskum krónum. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra skipaði á mánudaginn fimm manna sérfræðingahóp til að kanna ,,hvort og þá hvaða leiðir séu færar til að bregðast við vanda lántakenda vegna verðtryggingar." Formaður hópsins er jafnframt forseti Alþýðusambands Íslands, Gylfi Arnbjörnsson. Fréttastofa náði tali af honum í dag - en hann vildi engar upplýsingar veita um það hvenær von gæti verið á tillögum frá hópnum. Heimilin í landinu skulda nú um 1400 milljarða króna í verðtryggðum lánum. Verðtryggðar skuldir heimilanna hækkuðu um 30 milljarða á einum mánuði þegar verðbólgan komst í 15,9% eftir bankahrunið. Gangi spár hagfræðinga ASÍ eftir, hækkar verðbólgan upp í um 20% um áramótin. Þá munu verðtryggðar skuldir heimilanna enn hækka. Verðtryggðar skuldir heimilanna eru tífalt hærri en gengislána, sem eru um 150 milljarðar króna. Ríkisstjórnin brást skjótt við vanda þeirra sem eru með erlend myntkörfulán. 14. okt. beindi hún þeim tilmælum til ríkisbankanna að frysta afborganir skuldara á myntkörfulánum. Síðan eru liðnir 16 dagar og enn er þorri íslenskra skuldara í fullkominni óvissu um hvort og þá hvað verður gert til að mæta vanda þeirra sem skulda verðtryggðar íslenskar krónur.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Sjá meira