Innlent

Óprúttnir aðilar vildu narra notendur HÍ tölvupósts

Laust eftir miðnætti í nótt var sendur fjöldapóstur frá aðila utan Íslands til fjölmargra netfanga við Háskóla Íslands undir því yfirskini að hann væri frá netstjórn Háskólans. Í tölvupósti sem skólinn sendi notendum HÍ í morgun segir að í skeytinu hafi verið beiðni til notenda um að senda í svarskeyti notandanafn og lykilorð.

Reiknistofnun brýnir það fyrir notendum póstsins að þeir eigi aldrei undir nokkrum kringumstæðum að senda lykilorð í tölvupósti og aldrei að senda lykilorð háskólaaðgangsins á vefsíðu sem sé ekki sannanlega á vegum Reiknistofnunar.

Þá er vakin athygli á því að allar fjöldapósttilkynningar frá Reiknistofnun séu á íslensku, með eða án enskrar þýðingar að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×