Hætt við málssókn á hendur HB Granda 11. febrúar 2008 21:31 MYND/365
Verkalýðsfélag Akraness hefur í samráði við ASÍ ákveðið að hætta við fyrirhugaða málssókn á hendur HB Granda vegna uppsagna félagsins á Akranesi. Þetta kemur fram á vef ASÍ. Þar segir ASÍ telji að mikilvægur árangur hafi náðst í málinu. Alls var um 60 manns sagt upp og sökuðu forsvarmenn Verkalýðsfélags Akraness og ASÍ HB Granda um að fara ekki að lögum um hópuppsagnir. Síðan sú gagnrýni var sett fram, hafa orðið umtalsverðar breytingar á afstöðu fyrirtækisins til málsins, að sögn ASÍ. ,,Þær breytingar birtast með skýrum hætti í því samstarfi sem nú hefur tekist með forsvarsmönnum HB Granda, trúnaðarmönnum, Verkalýðsfélagi Akraness og Vinnumálastofnun um endurmenntunar áætlun og ráðgjöf gagnvart þeim sem missa vinnuna þegar uppsagnir starfsfólks koma til framkvæmda. Viðkomandi starfsmönnum verður veitt aðstoð við atvinnuleit, aðgengi að viðeigandi námskeiðum, gerð ferilsskrár og greiningu áhugasviðs síns. Full ástæða er til að fagna þessu framtaki og því samstarfi sem tekist hefur, enda er það mjög í anda laganna um hópuppsagnir og markmiða þeirra," segir á vef ASÍ. Þá er bent á að félag- og tryggingamálaráðherra hafi ákveðið að kanna í samráði við aðila vinnumarkaðarins hvort rétt sé að styrkja reglur um hópuppsagnir, þar með talið að skýra og taka af öll tvímæli um hvernig standa á að framkvæmd þeirra.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira