Ábendingar til Samkeppniseftirlitsins fimmfaldast milli ára 26. júní 2008 15:27 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samekppniseftirlitsins. MYND/Páll Bergmann
Fjöldi þeirra ábendinga sem Samkeppniseftirlitinu bárust frá almenningi og fyrirtækjum fimmfaldaðist á milli áranna 2006 og 2007. Þetta kemur fram í ársskýrslu eftirlitsins sem kynnt var í dag. Alls bárust 150 ábendingar í fyrra, flestar um nýja gátt á heimasíðu stofnunarinnar, en ábendingarnar voru 30 árið 2006. Í skýrslunni segir einnig að langflestar ábendingar hafi varðað neyslu- og rekstrarvörur, einkum matvörumarkað, fjarskipti og fjölmiðlun, samgöngur ogferðamál. Þá kemur fram í skýrslunni að málum í meðferð í fyrra hafi fjölgað miðað við fyrri ár, en þau reyndust 136. Á árinu lauk 117 málum, þar af lauk um 70 málum með ákvörðun á heimasíðu. Hér eru einungis talin stjórnsýslumál sem lúta með einum eða öðrum hætti að atvikum í atvinnulífinu. Þá framkvæmdi Samkeppniseftirlitið framkvæmdi óvenjumargar húsleitir á árinu. Þannig var ráðist í sex húsleitaraðgerðir hjá um 15 fyrirtækjum vegna fimm stjórnsýsluathugana. Enn fremur hefur skilvirkni stofnunarinnar aukist á undanförnum árum. Segir í skýrslunni að þrátt fyrir að málum hafi fjölgað og umfang aukist hafi tekist að stytta meðallengd málsmeðferðar talsvert. Miðgildi málsmeðferðartíma sýnir enn fremur að helmingi mála lauk á innan við þremur mánuðum eftir að mál hófst. Aldurssamsetning mála hefur einnig breyst mikið til batnaðar. Þannig eru 70 prósent mála sem til meðferðar voru í byrjun árs 2007 yngri en eins árs, samanborið við 52 prósent árinu áður. Um 11 prósent mála voru nú eldri en tveggja ára, samanborið við 27 prósent árinu áður.
Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira